„Ég hef ekki mikinn áhuga á pólitík“

Egill Helgason segir að hóf­sömu öflum hafi algjör­lega mis­tek­ist að halda í sína kjós­endur. „Heim­ur­inn hefur ekki versnað mikið, held ég. Það er bara umræðan sem hefur súrnað svo svaka­lega.“

Egill Helgason, sem hefur haft dag­skrár­vald í póli­tískri umræðu hér á landi í yfir tvo ára­tugi, seg­ist ekki vera jafn­spenntur fyrir póli­tík og hann var áður. „Ég hef ekki mik­inn áhuga á póli­tík. Ég kem ekk­ert úr póli­tík. Ég byrj­aði ekki að hafa áhuga á póli­tík fyrr en ég var þrí­tugur. Ég var meira í bók­menntum og listum. Um þrí­tugt fór ég að lesa ævi­sögur stjórn­mála­manna og fékk þá áhug­ann, og fór meira út í frétta­mennsku sem tengd­ist póli­tík. Það má segja að ég sé far­inn aftur í mitt gamla sjálf sem hafði meiri áhuga á bók­menntum og listum en stjórn­málum.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í for­síðu­við­tali Heim­ild­ar­innar við Egil. 

Hann segir að þess beri að gæta að póli­tík í heim­inum sé auð­vitað eilíf von­brigði fyrir fólk á hans stað á hinu póli­tíska lit­rófi. „Ég er frjáls­lyndur miðju­maður. Sós­í­alist­arnir upp­nefna okkur libba, með vísun í liberal, og telja okkur afskap­lega vont fólk. Heim­ur­inn hefur auð­vitað þró­ast í átt sem okkur finnst alveg skelfi­legur. Við erum með Pútín, Orban, Trump og allar þessar popúl­ísku hreyf­ingar. Það er út í hött að maður skuli þurfa að standa í því að verj­ast ein­hverjum fárán­legum sam­sær­is­kenn­ingum um bólu­setn­ingar, barn­a­níð og QAnon. Það er ansi þungt að umræðan sé farin að snú­ast um ein­hverja svona vit­leysu. Þessum hóf­sömu öflum hefur algjör­lega mis­tek­ist að halda í sína kjós­endur. Heim­ur­inn hefur ekki versnað mikið, held ég. Það er bara umræðan sem hefur súrnað svo svaka­lega,“ segir Egill, þungt hugsi. 

Þetta er hluti þess sem hefur gert hann þreyttan á póli­tík­inni, en líka allar end­ur­tekn­ing­arnar sem hann upp­lifir óhjá­kvæmi­lega eftir öll þessi ár í fjöl­miðlum. „Það kemur nýtt fólk en umræðan er sú sama. Við Íslend­ingar erum ekk­ert rosa­lega dug­legir í að breyta hlutum. Við búum til kerfi eins og kvóta­kerfið og land­bún­að­ar­kerfið og erum svo að þrasa um þau árum saman. Það verður líka svo­lítið lýj­andi.“

Hann með ákveðnar kenn­ingar um ástæður þess að hann upp­lifir þessa þreytu. „Er hugs­an­legt að fólkið sem var í stjórn­mál­unum hafi verið lit­rík­ara þegar ég var að byrja? Eða var ég bara yngri og mót­tæki­legri? Mér finnst fólkið í fram­lín­unni þá hafa verið dálítið stærra í sniðum. Þarna vorum við með Davíð og Ingi­björgu Sólrúnu. Þetta er aðeins flatneskju­legra núna. Sem er allt í lagi. Það er gott að venju­legt fólk sé í póli­tík. Við þurfum ekki alltaf ein­hver ofur­menni eða stór­kost­lega leið­toga. En það er mikil þreyta í stjórn­mál­unum hér og lítið að ger­ast inni í flokk­unum. Kannski er ég bara orð­inn eldri, því ekki jafn hrif­næmur og þyk­ist sjá meira í gegnum hlut­ina en áður.“

Áskrif­endur geta lesið við­talið við Egil í heild sinni hér. 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Sjá meira

Viðtal

„Ég vona að ég eigi aldrei eftir að sökkva svo djúpt aftur“

Egill Helgason er á tíma­mótum. Hann er hættur með Silfrið sem lengi var kennt við hann sjálfan, helsta póli­tíska umræðu­þátt lands­ins. Hann seg­ist í upp­hafi hafa skolfið eins og lauf í vindi þegar hann var í sjón­varpi en elski nú að vera í beinni. Egill kynnt­ist eig­in­konu sinni á nekt­ar­stað og þau eign­uð­ust son ári síðar. Hann rifjar upp þegar ölv­aður þing­maður mætti til hans í settið og þegar hann fleygði vatns­könnu út í sal í reiði­kasti. Egill hefur háð sína glímu við kvíða og þung­lyndi, og upp­lifði sinn versta tíma þegar Trump var kos­inn for­seti Banda­ríkj­anna.

16 mín. lestur

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár