Húsleit hjá Eimskip vegna förgunar á tveimur gámaskipum

Hér­aðs­sak­sókn­ari gerði í morgun hús­leit á skrif­stofum Eim­skipa­fé­lags Íslands. Aðgerð­irnar eru hluti af rann­sókn emb­ætt­is­ins á förgun tveggja risa­stórra gáma­skipa sem siglt var í strand við Indland á síð­asta ári. Fyr­ir­tækið lét sjálft vita af hús­leit­inni í til­kynn­ingu til Kaup­hall­ar­innar.

Hér­aðs­sak­sókn­ari hóf í morgun hús­leit á skrif­stofum Eim­skipa­fé­lags­ins eftir að hafa fengið heim­ild til þess hjá dóm­stólum. Það var fyr­ir­tækið sjálft sem sagði frá hús­leit­inni með til­kynn­ingu til Kaup­hall­ar­innar. Tilefni hús­leit­ar­innar er sala á gáma­skip­unum Laxfossi og Goða­fossi árið 2019 og grunur um brot á lögum um með­höndlun úrgangs og reglu­gerða setta á grund­velli þeirra.

Kveikur greindi frá því á síð­asta ári að skip­unum hefði verið fargað við Alang-strönd á Indlandi þar sem skipin voru brotin niður við aðstæður sem brjóta í bága við evr­ópsk lög. Í kjöl­farið kærði Umhverf­is­stofnun fyr­ir­tækið til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara. 

„Embættið hefur óskað eftir afmörk­uðum gögnum vegna sölu skip­anna Goðafoss og Laxfoss á árinu 2019 sem Umhverf­is­stofnun kærði til hér­aðs­sak­sókn­ara 2020. Engir ein­stak­lingar hafa rétt­ar­stöðu í mál­inu. Félagið vinnur nú að því að afla þeirra upp­lýs­inga sem hér­aðs­sak­sókn­ari hefur óskað eftir,“ segir í til­kynn­ingu Eimskips. 

Ólafur Þór Hauksson hér­aðs­sak­sókn­ari stað­festi að ráð­ist …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Samherji og Mái samir við sig -,við eigum við megum.Þingmans druslur þrífið upp eftir mig annars engvir stirkir.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár