Í útrás með auglýsingakerfi

Íslenska hug­bún­að­ar­fyr­ir­tækið Overcast ætlar í land­vinn­inga erlendis með staf­rænan aug­lýs­inga­hug­búnað sinn.

Starfsmenn og eigendur Overcast Software. Frá vinstri: Einar Jónsson, Sævar Öfjörð Magnússon, Kjartan Sverrisson og Arnar Tumi Þorsteinsson.
Starfs­menn og eig­endur Overcast Software. Frá vinstri: Einar Jónsson, Sævar Öfjörð Magn­ús­son, Kjartan Sverr­is­son og Arnar Tumi Þor­steins­son. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Íslenska hug­bún­að­ar­fyr­ir­tækið Overcast hefur gert sam­starfs­samn­ing við stóra aug­lýs­inga­stofu í Noregi, SMFB Engine. Aug­lýs­inga­stofan dreifir aug­lýs­ingum fyrir nokkra af stærstu aug­lýsendum í Noregi, þar á meðal IKEA, Diadora og Freia.

Overcast hefur á und­an­förnum árum verið að þróa hug­búnað fyrir aug­lýs­inga­mark­að­inn þar sem mark­miðið hefur verið að ein­falda flókið birt­ing­ar­ferli, frá ákvörðun um birt­ingu aug­lýs­inga þar til að aug­lýs­ingin birt­ist á skjám net­verja. Fyr­ir­tækið var stofnað árið 2014 og er í eigu starfs­manna þess.

Afurðin er Airdate sem þykir henta vel fyrir hinn síkvika staf­ræna augýs­inga­heim. „SMFB Engine er í sífelldri þróun vegna þess hve hratt staf­ræni aug­lýs­inga­mark­að­ur­inn hreyf­ist,“ er haft eftir Kim Herlung, fram­kvæmda­stjóra norsku aug­lýs­inga­stof­unnar, í til­kynn­ingu.

„Airdate frá Overcast Software end­ur­spegl­aði okkar metnað með ein­faldri lausn á gríð­ar­lega flóknu ferli við rekstur alþjóð­legra aug­lýs­inga­her­ferða þvert á margar teg­undir miðla.“

[adspot]

Overcast hefur verið að kynna lausnir sínar á erlendum vett­vangi á und­an­förnum mán­uðum. „Overcast er með mjög tækni­lega vel útfærða lausn sem hentar norska mark­að­inum vel,“ Báður Örn Gunn­ars­son mark­aðs­ráð­gjafi sem hefur leitt vinnu við kynn­ingu á hug­bún­að­inum í Noregi. „Norski mark­að­ur­inn er marg­falt stærri en sá íslenski og mun framar tækni­lega en þó eiga þeir margt sam­eig­in­legt. Osló var því áskorun en aug­ljós fyrsti áfanga­staður.“

Stór hluti íslenskra aug­lýs­inga­stofa og birt­ing­ar­húsa auk mark­aðs­deilda stærri fyr­ir­tækja nota dag­lega hug­búnað frá fyr­ir­tæk­inu. Umsýsla með aug­lýs­ing­arnar sem birt­ast í Kjarn­anum fer til dæmis fram í hug­bún­að­inum.

„Samn­ing­ur­inn við SMFB Engine er mikið gleði­efni fyrir okkur hjá Overcast Software og stað­festir að það er vöntun á hug­bún­aði á borð við Airdate á stærri mörk­uðum. Þetta er því fyrsta skrefið í átt­ina að frek­ari útbreiðslu Airdate á Norð­ur­landa­mark­aði,“ segir Kjartan Sverr­is­son, fram­kvæmda­stjóri Overcast Software.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár