Ísland hefur gefið 125.726 skammta af bóluefni

Hingað til hefur Ísland gefið tæp­lega 130 þús­und skammta af bólu­efni AstraZeneca inn í COVAX, alþjóð­legt sam­starf sem tryggja á jafnan aðgang að bólu­efni. Þegar COVAX fer að taka við bólu­efni Janssen stendur til að gefa um 154 þús­und skammta af því.

Um 134 þúsund skammtar af bóluefni eru til í landinu eða væntanlegir.
Um 134 þús­und skammtar af bólu­efni eru til í land­inu eða vænt­an­legir. Mynd: EPA

Á annan tug Evr­ópu­ríkja eru ýmist byrjuð eða í start­hol­unum að gefa full­bólu­settum örv­un­ar­skammta þótt Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin (WHO) og Sótt­varna­stofnun Evrópu mæli almennt gegn slíku. Ísland er í þessum hópi og hér hafa um 40 þús­und full­bólu­settir ein­stak­lingar fengið auka­skammt. Sótt­varna­læknir segir hins vegar við Kjarnann að deila megi um hvort kalla eigi þessar bólu­setn­ingar „örvun“ eða við­bót“ [links]þar sem hóp­arnir sem þær eru að fá séu ann­ars vegar Janssen-þegar (sem fengu upp­runa­lega eina sprautu) og eldra fólk. „Við vitum að þeir sem fengu Janssen, eldra fólk og ónæm­is­bældir ein­stak­lingar mynd­uðu ekki nægi­lega mikið af mótefnum,“ segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir spurður hvort að óyggj­andi gögn um ávinn­ing af örvun bólu­setn­inga liggi fyrir. Hann segir erlendar rann­sóknir sýna að örv­un­ar­bólu­setn­ing örvi mótefna­myndun hjá fólki en að hins vegar hafi ekki liðið nægi­lega langur tími til að svara því hvort að hún end­ur­speglist svo í raun­veru­legri vernd.

Sótt­varn­ar­stofnun Evrópu (ECDC) segir í nýj­ustu til­mælum sínum mik­il­vægt að gera grein­ar­mun á örv­unar- og við­bót­ar­skömmtum. Við­bót­ar­skammtar séu gefnir þeim sem eru með veikt ónæm­is­kerfi (hrumt eldra fólk, líf­færa­þegar og fólk með ákveðna und­ir­liggj­andi sjúk­dóma) sem svör­uðu ekki bólu­setn­ingu fylli­lega. Örv­un­ar­skammtar séu hins vegar gefnir almennt þegar vernd bólu­efnis dvíni. Stofn­unin segir að eins og er bendi rann­sóknir til þess að vörn bólu­setn­inga sé mikil gegn alvar­legum veik­indum af COVID-19 og dauða og því sé „ekki brýn þörf á örvun full­bólu­settra ein­stak­linga almennt“.

[adspot]

Björn Rúnar Lúð­víks­son, pró­fessor við lækna­deild Háskóla Íslands og yfir­læknir ónæm­is­fræði­deildar Land­spít­ala, segir í grein í nýjasta hefti Lækna­blaðs­ins að fyr­ir­liggj­andi gögn um örvun bólu­setn­inga meðal ónæm­is­bældra (sem eigi við um 3 pró­sent íslensku þjóð­ar­innar) séu nokkuð afger­andi en ekki rann­sökuð til fulls. Hins vegar séu tak­mark­aðar nið­ur­stöður fyr­ir­liggj­andi um árangur örv­un­ar­skammts hjá ann­ars heil­brigðu fólki með til­liti til auk­innar verndar gegn delta-afbrigð­inu. „Meg­in­á­herslan ætti því að mið­ast við að ná til sem flestra til bólu­setn­ingar, með sér­staka áherslu á örv­un­ar­skammt hjá ónæm­is­bældum,“ skrifar hann.

Arnar Pálsson erfða­fræð­ingur tal­aði á sömu nótum í ítar­legri frétta­skýr­ingu Kjarnans um örv­un­ar­bólu­setn­ingar sem birt var um helg­ina. „Ef við viljum hámarka vernd­ina sem fæst út úr hverjum bólu­efna­skammti þá er áhrifa­rík­ast að bólu­setja sem flesta með tveimur skömmtum áður en farið er að örva með þeim þriðja,“ sagði hann.

Þetta er í sam­ræmi við ábend­ingar WHO sem hefur hvatt ríki heims til að fresta almennum örv­un­ar­bólu­setn­ingum, að minnsta kosti þar til í októ­ber, svo efla megi bólu­setn­ing­ar­her­ferðir hjá þeim fátæk­ari. WHO hefur ítrekað sent út ákall um að hátekju­ríki, sem flest hafa þegar bólu­sett meiri­hluta sinna borg­ara, gefi meira bólu­efni inn í COVAX, alþjóð­legt sam­starf sem stofnað var snemma í far­aldr­inum til að tryggja jafna dreif­ingu bólu­efna. Tugir ríkja skuld­bundu sig til þátt­töku en efnd­irnar hafa látið á sér standa. Mark­miðið var að millj­arði gjafa­skammta yrði veitt inn í COVAX fyrir ágúst­lok en nið­ur­staðan var í kringum 99 millj­ónir.

Ísland hefur gefið 125.726 umfram­skammta af bólu­efni AstraZeneca inn í COVAX og þegar vett­vang­ur­inn fer að taka við bólefni Janssen verða sam­kvæmt upp­lýs­ingum úr utan­rík­is­ráðu­neyt­inu 153.500 skammtar af því gefnir. „Ekki liggur fyrir hverjir við­tak­endur bólu­efn­anna verða en þau fara þangað sem þörfin er mest,“ segir Sveinn Guð­mars­son, upp­lýs­inga­full­trúi ráðu­neyt­is­ins, við Kjarnann.

Ísland hefur auk þess varið rúmum millj­arði króna til að tryggja þró­un­ar­ríkjum aðgang að bólu­efnum og til að flýta þróun, fram­leiðslu og jöfnum aðgangi að skimun­ar­bún­aði og með­ferðum við COVID-19.

Heil­brigð­is­ráðu­neytið segir við Kjarnann að frek­ari „geta Íslands“ til að gefa bólu­efni inn í sam­starfið verði metin á þeim grunni að hér séu hafnar örv­un­ar­bólu­setn­ingar og bólu­setn­ingar barna.

134 þúsund skammtar til eða á leiðinni

72 pró­sent lands­manna hafa nú verið full­bólu­settir. 84 pró­sent 12 ára og eldri eru full­bólu­settir. Um 530 þús­und skammtar hafa verið not­aðir hér. Um 40 þús­und manns hafa fengið örv­unar/við­bót­ar­skammt.

Um 47 þús­und skammtar af bólu­efnum eru til í land­inu, segir Júlía Rós Atla­dóttir, fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins Distica sem sér um geymslu þeirra. Mest er til af Moderna og Pfizer en einnig umtals­vert magn (sam­an­lagt um 12 þús­und skammtar) af Janssen og AstraZeneca. Í þessum mán­uði er von á 87 þús­und skömmtum frá Pfizer og Moderna til við­bótar. Sam­an­lagt eru því 134 þús­und skammtar annað hvort komnir til lands­ins eða á leið­inni.

[adspot]

Í dag býðst öllum þeim sem fengu bólu­efni Janssen að fá örv­un­ar­skammt. Þá býðst einnig öllu fólki sex­tíu ára og eldra að fá við­bót­ar­skammt, óháð því hvaða bólu­efni það var full­bólu­sett með.

Ragn­heiður Ósk Erlends­dóttir, fram­kvæmda­stjóri hjúkr­unar hjá Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, segir við Kjarnann að um 17 þús­und Janssen-þegar á starfs­svæði stofn­un­ar­innar hafa fengið auka­skammt. Allir hafi þeir fengið örvun með bólu­efnum Moderna eða Pfizer. Um 2.200 örv­un­ar­skammtar hafa verið gefnir íbúum hjúkr­un­ar­heim­ila á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og fólki 90 ára og eldra.

Astra og Janssen ekki ofarlega á vinsældarlistanum

Frá því í byrjun ágúst hafa aðeins um 220 manns þegið Janssen-bólu­efnið og 102 bólu­efni AztraZeneca. Ragn­heiður segir óbólu­setta nú hafa val á milli bólu­efna Pfizer og Janssen. Lang­flestir velji Pfizer og þeir sem velji Janssen séu helst þeir sem þurfi bólu­setn­ing­ar­skír­teini strax.

„Þátttaka í við­bót­ar­bólu­setn­ingu hefur verið nokkuð góð en vænt­ingar stóðu til að fleiri kæmu í bólu­setn­ingu sem bólu­settir voru með bólu­efni Janssen,“ segir Þórólfur við Kjarnann. Hann segir ekki nægi­lega langan tíma lið­inn til að meta þátt­tök­una í örv­un­ar­bólu­setn­ingu.

Engar ákvarð­anir hafa verið teknar um frek­ari örv­un­ar­bólu­setn­ingar hér á landi og Þórólfur segir leið­bein­ingar Sótt­varna­stofn­unar Evrópu, þar sem ekki er mælt með almennri örvun bólu­setn­inga að svo stöddu, vera í takti við sína sýn á fram­haldið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár