Stefán Snævarr

Stefán Snævarr

Stefán Snævarr fæddist árið 1953 í Reykjavík. Hann er prófessor í heimspeki við Háskólann í Innlöndum í Noregi. Hann hefur stundað margháttuð ritstörf og skrifað bækur á ýmsum tungumálum. Brill forlagið gaf nýlega út heimspekirit hans The Poetic of Reason. Árið 2010 hlaut hann fyrstu verðlaun í ritgerðarsamkeppni The International Association of Aesthetics.

Hegel 250 ára

Heim­spek­ing­ur­inn Georg Wilhelm Friedrich Hegel (1770-1831) var í heim­inn bor­inn á þessum degi fyrir tvö hund­ruð  og fimm­tíu árum. Hann er einn fræg­asti og umdeild­asti heim­spek­ingur allra tíma, aðdá­end­urnir töldu hann mesta spek­ing sög­unnar, and­stæð­ing­arnir svindl­ara og frels­is­fjanda. Ein af ástæð­unum var sú að hann skrif­aði einatt með all tor­ræðum hætti. Aðdá­end­urnir töldu það merki um dýpt hans, and­stæð­ing­arnir að...

Hitler og Stalín: Hvor drap fleiri? Hvor kúg­aði meir?

Um dag­inn fór ég í kvik­mynda­hús og sá mynd­ina Mr. Jones í leik­stjórn hinnar pólsku Agnieszku Holland. Hún byggir á raun­veru­legum atburðum, því þegar breski blaða­mað­ur­inn Mr. Jones upp­götv­aði hung­ursneyð­ina miklu í Úkraínu í byrjun fjórða ára­tug­ar­ins. Millj­ónir manna sultu í hel, „þökk“ sé Sólinni miklu, Jósef Stalín, sem lét taka afurðir af bændum til að fjár­magna meinta iðn­væð­ingu. Bænd­urnir...

ÞRÆLAHALD, IÐNVÆÐING, EINKAFRAMTAK

Karl Marx tal­aði  um frum­stæða upp­hleðslu auð­magns sem for­sendu iðn­væð­ingar á Vest­ur­löndum. Kalla megi hana „erfða­synd kap­ít­al­ism­ans“, sagði  Marx hæðn­is­lega. Brott­rekstur bænda af almenn­ingi í Bret­landi og víðar um lönd hafi verið ein af for­sendum þess­arar auð­magns­upp­hleðslu.  Vestræn nýlendu­veldi hafi farið ráns­hendi um nýlendur og notað ráns­fengin til fjár­fest­inga (Marx (1972): 790-858 (24 og 25 kafli). Var þræla­hald for­senda iðn­væð­ingar? Sumir...

"Svo ein­falt er það"...ekki. Karl Th og Jón Steinar

Karl Th. Birg­is­son  skrifar skemmti­legan pistil um Jón Steinar Gunn­laugs­son og nýtt greina­safn hans. Hann víkur líka að bók Jóns Steinars frá 1987, Deilt á dóm­ar­ana, og segir að gagn­rýni hans á Hæsta­rétt í þeirri bók  hafi verið vel rök­studd. Jón Steinar ræðir sex dóms­mál í   Deilt á dóm­ar­ana  og kemst að þeirri nið­ur­stöðu að Hæsti­réttur hafi verið of...

Vísindin, stjórn­málin, Þor­valdur

Það kann að vera rétt að Lars Calmfors hafi ekki haft umboð til að veita Þorvaldi Gylfa­syni stöðu rit­stjóra hins marg­um­tal­aða tíma­rits. Eigi að síður er borð­leggj­andi að fjár­mála­ráð­herra og und­ir­tylla hans sögðu beinum orðum að hann fengi ekki stöð­una vegna  þess  að skoð­anir hans sam­rýmd­ust ekki við­horfi  þeirra. Af ummælum þess­ara manna („rök­styðj­enda“) verður ekki annað ráðið en að...

Norski auð­menn gefa þjóð­inni lista­verk o.fl. Hvað gefa íslenskir auð­jöfrar?

Í Høvikodden fyrir utan Ósló getur að líta mikið safn nútíma­listar sem stofnað var af skauta­drottn­ing­unni Sonja Henie og manni hennar, auð­kýf­ingnum  Nils Onstad. Það ber heitið Henie-Onstad safnið. Hinn for­ríki útgerð­ar­maður Anders Jahre var skattsvik­ari dauð­ans en gaf stórfé til vís­inda­rann­sókna og fræði­mennsku. Annar rík­is­bubbi, Christian Ringnes, dældi stórfé í högg­mynda­lysti­garð í Ósló. Í þeirri borg má finna Astrup-Fearnley...

Ayn Rand og hinir ómissandi

Einhver leið­in­leg­asta skáld­skaga, sem ég hef lesið,  er Atlas Shrugged eftir frjáls­hyggju­post­ul­ann Ayn Rand. Hún er illa skrifuð, óþol­andi lang­dregin og per­sónu­sköpun engin. „Hátind­ur­inn“ er löng og leið­in­leg ræða aðal­per­són­unnar John Galts. Hann stóð á bak við eins konar verk­fall skap­andi fólks og ann­arra afburða­manna, ekki síst athafna­manna. Þeir hrein­lega yfir­gáfu sam­fé­lagið og komu sér fyrir á leyndum stað. Fyrir...

Frelsið, nefið og veiran

Hefur ríkið sið­ferði­legan rétt til að tak­marka frelsi borg­ar­anna til að koma í veg fyrir drep­sóttir? Einhver kann að segja að   mikil hætta sé   á að óprút­tnir stjórn­mála­menn noti slíkar tak­mark­anir sem stökk­pall til að gera ríkið almátt­ugt og kála frels­inu.  Eða er slík tak­mörkun nauð­syn­leg til að hindra þá frels­is­svipt­ingu sem drep­sóttin getur valdið? Hugsum okkur að   hlut­verk rík­is­ins...

Mak­ríl­frekja sægreif­anna og þrí­flokka­banda­lag 2021

Mér varð óglatt þegar ég frétti af nýj­ustu upp­á­komu sægreif­anna. Nokkrir þeirra heimta nú millj­arða af rík­is­sjóði vegna þess að þeir telja sig hlunn­farna um mak­ríl­kvóta. Þessi krafa er sett fram á tímum þegar alvar­leg efna­hag­skreppa er í nánd og rík­is­sjóður þarf á öllu sínu að halda til að efla atvinnu­vegi og heil­brigð­is­kerfi. Hafa sægreif­arnir ekki fengið nóg af almannafé?...

Mest lesið undanfarið ár