Stefán Snævarr

Stefán Snævarr

Stefán Snævarr fæddist árið 1953 í Reykjavík. Hann er prófessor í heimspeki við Háskólann í Innlöndum í Noregi. Hann hefur stundað margháttuð ritstörf og skrifað bækur á ýmsum tungumálum. Brill forlagið gaf nýlega út heimspekirit hans The Poetic of Reason. Árið 2010 hlaut hann fyrstu verðlaun í ritgerðarsamkeppni The International Association of Aesthetics.

Stjórnin og Marx

 "Þegar hnígur húm að þorra oft ég hygg til feðra vorra og þá fyrst og fremst til..." Karls Marx sem samdi Auð­magnið. Reyndar hefur annað rit Marx verið mér hug­stætt á dögum ríkra-rík­is­stjórn­ar­innar, Komm­ún­ista­ávarpið, sem hann setti saman í félagi við Friedrich Engels. Þar segir: „Rík­is­vald vorra tíma er ekk­ert annað en fram­kvæmda­ráð er ann­ast sam­eig­in­leg mál­efni allrar borg­ara­stétt­ar­innar“ (Marx...

Á kjör­degi

 Í sög­unni  um Ves­al­ing­ana er greint  frá upp­reisn í Frakk­landi gegn vold­ugri yfir­stétt. Herinn varar upp­reisn­ar­menn við og segir þá dæmda til að tapa. Í söng­leiknum svarar  upp­reisn­ar­for­ing­inn með svo­felldum hætti: „Damn their warnings, damn their lies, they will see the people rise!“ Stjórn­ar­liðar vara nú kjós­endur við að kjósa stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ana. Því má svara á sömu lund og gert var í Ves­al­ing­unum:...

Stjórnin: Mölvum hana, bölv­aða!

 Einn helsti heim­spek­ingur upp­lýs­ing­ar­tím­ans kall­aði sig "Voltaire" og var franskur aðals­maður.  Hann barð­ist gegn vald­níðslu,   og hjá­trú­ar­grillum,  end­aði oft bréf sín á því að skrifa  „Écrasons l'infâme “, „mölvum hana bölv­aða“.  Átti við kirkju­vald, umburð­ar­leysi, hjá­trú og annan djöf­ul­dóm. Heimfæra má þessa hvatn­ingu Voltaires á íslenskan nútíma, á laug­ar­dag­inn ber okkur að mölva hina bölv­uðu ríkra-rík­is­stjórn. Og hennar umburð­ar­leysi, vald­níðslu margs...

Deilan um Dylan

 Netheimar loga nú vegna nóbels­nafn­bótar Bob Dylans og sýn­ist sitt hverjum.  Sumir fagna ákaft, aðrir segja Dylan óhag­mæltan dæg­ur­laga­söngv­ara. Deilan er mjög af hinu góða því list á að hreyfa við mönnum, hvetja þá til umhugs­unar og and­mæla, kapp­ræðna og rök­ræðna. Það rýrir ekki upp­lif­un­ar­gildi list­anna. Upplifun, til­finn­ingar  og hugsun verða að hald­ast í hendur þegar við nálg­umst lista­verk með...

Hund­seðlið og katt­ar­eðlið

 Feita fressið: Ég verð nú að segja fyrir mig og mína parta og með fullri virð­ingu fyrir ykkur hundum að mér  finn­ast við kettir merk­ari skepnur en þið hundar. Við erum sjálfs­stæðir og sterkir, þið ótta­legar hópsálir og und­ir­lægjur. Okkar sið­ferði er herrasið­ferði, ykkar þrælasið­ferði.  (kisa hefur greini­lega lesið Nietzsche!) Stjúp­hvolp­ur­inn: Vitleysa, við hundar erum trygg­lyndir og fórn­fúsir, við kunnum...

Dylan nóbels­skáld!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Mikil tíð­indi, Bob Dylan fær nóbels­verð­laun­iní bók­menntum!!!! Maðurinn með and­litin  mörgu (grímu­fjöld?), mað­ur­inn sem end­ur­skapar sig sjálfan fimmta hvert ár eða svo. Fyrst reiða unga mann­inn, mót­mæl­and­ann með kassagít­ar­inn, svo dul­ar­fulla, inn­hverfa, skáldið og kúl­mennið með raf­magns­gít­ar­inn. Næst kán­trígaur­inn með skæru rödd­ina, þá nýja  útgáfu af dul­ar­fulla skáld­inu. Svo þann heit­trúar- kristna, þá Gyð­ing­inn end­ur­borna o.s.frv., o.s.frv. Póst­módern­ist­inn Dylan Það er póst­módern­istafnykur...

Valdið og féð 2.0

 Færsla mín, Valdið og féð, birt­ist á óheppi­legu augna­bliki þann 18 apríl síð­ast­lið­inn, kortéri áður en Ólafur Ragnar til­kynnti um fram­boð sitt. Færslan varð heldur hjáróma í gaura­gang­inum út af því. Síðan hafa ýmsir álits­gjafar höggvið í sama knérunn. En boð­skapur minn ætti að skipta menn máli, ekki síst þegar litið er á ýmsa fram­boðs­lista, t.d. lista Við­reisnar. Hér birt­ist hún á...

Eft­ir­hruns­móður- og væn­i­sýkin

 Hvernig birt­ist eft­ir­hruns­móður- og væn­i­sýki (e.m.ov.s.)? Í skrifum og tali manna sem flytja eða rita reiði­lestra um hve allt sé von­laust á Íslandi, spill­ing mikil, mis­skipt­ing ógur­leg, stjórn­mála­menn hrylli­legir o.s.frv. Töluvert til í þessum stað­hæf­ingum en ofsi e.m.o.v.s-liðs­ins blindar það. Það gerir alltof mikið úr vand­anum, rök­styður ekki mál  sitt heldur  bölsót­ast, talar í sleggju­dómum, klisjum og frösum. Stíllinn er...

Norska barna­verndin og þögn fjöl­miðla

Ég hef áður gert að umtals­efni þá gagn­rýni sem norska barna­vernd­ar­nefndin fær víða um lönd, m.a. í BBC-þæti og í við­tölum á Stund­inni. Barna­vernd­ar­nefndin og þögn norskra fjöl­miðla Barna­vernd­ar­nefndin er borin þeim sökum (með réttu eða röngu) að taka börn frá for­eldrum fyrir litlar sakir og að dóm­stólar dæmi henni nán­ast ávallt í vil. Allt kerfið standi með nefnd­inni. Miklar...

Mest lesið undanfarið ár