Listflakkarinn

Listflakkarinn

Listflakkarinn og rithöfundurinn Snæbjörn Brynjarsson lýsir því sem ber fyrir augu og eyru, hvað á daga hans drífur og hvað er að gerast í listheimum. (Og svo inni á milli röfl).

Að sjá ekki skól­ann fyrir sjó­mann­inum

Núna um dag­inn átti sér stað sjó­manns­hvarf. Það var að vísu ekki skip­skaði heldur var málað yfir greyið mann­inn og vakti þetta skyndi­lega brott­hvarf mikla umræðu, sem á end­anum hverfð­ist um gamlan karl í blokk skammt frá. Í sjálfu sér var ekki mik­ill missir af verk­inu, þótt það væri synd ef veggur sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neyt­is­ins héld­ist áfram hvítur. En ef nið­ur­staðan er...

Vopnuð lög­regla- við hverju má búast?

Lögregla á Íslandi hefur vopn­ast án þess að sam­fé­lagið hafi kallað eftir því. Ekki er svo langt síðan fyrsti Íslend­ing­ur­inn var skot­inn til bana í lög­reglu­að­gerð, nokkuð sem ekki allir hafa náð sér fylli­lega eftir. En íslenskt sam­fé­lag verður aldrei samt aftur. Vopnun lög­regl­unnar ger­ist án þess að þingið sinni fylli­lega eft­ir­lits­hlut­verki sínu. Ein þing­kona úr stjórn­ar­meiri­hlut­anum gerð­ist jafn­vel...

Hið íslenska cargo cult

Íslensk stjórn­mála­stétt ber ekki virð­ingu fyrir kjós­endum sínum, lýð­ræð­inu og jafn­vel eigin siða­reglum. Van­þroskuð stjórn­mála­menn­ing hefur reynst okkur dýr­keypt. Þegar umhverf­is­ráð­herra vals­aði um þing­sal í 250 þús­und króna kjól hag­aði hún sér meira eins og franskur aristókrati heldur en þing­kona. En hún er ekki eins­dæmi. Gjörn­ingur hennar inni á Alþingi og kjóll­inn eru bara tákn­ræn fyrir mjög algengan þanka­gang. Þanka­gang...

Ráðherra eða sölu­maður?

Mis­notkun á emb­ætti? Fyrrum heil­brigð­is­ráð­herra, núver­andi mennta­mála­ráð­herra er að aug­lýsa tæki sem eig­in­kona náins sam­starfs­að­ila er að selja. Boditrax er tæki til að mæla vöðvamassa og fitu segir í frétta­til­kynn­ingu frá Ágústu Johnson, eig­in­konu Guðlaugs Þórs, utan­rík­is­ráð­herra, sem Smartland birtir. Það má vel vera að Boditrax sé ágætt tæki til að mæla árangur af lík­ams­rækt, þetta snýst ekki um...

Svarti galdur lifir enn

Íslensk galdra­trú er mjög skemmti­leg og hefur verið inn­blástur í alls kyns verk, líka á 21. öld­inni. M.a. í skáld­sög­unum Hrímland og Víghólum (sem ég hef áður ritað dóm um). Skilj­an­lega vekur hún líka áhuga ferða­manna. Á land­náms­setr­inu í Borg­ar­nesi hefur verið sýnd sýn­ingin „Black Magic“ leikin af Geir Konráð Theo­dórs­syni við ágætar und­ir­tektir, en nú hefur hann snarað verk­inu...

Byggjum nýtt Breið­holt og mennta­kerfi

Ef það væru virki­lega fram­sýn stjórn­völd á Íslandi í dag væri verið að bregð­ast við krísu í mennta­málum og krísu í hús­næð­is­málum. Það ríkir skortur á hús­næð­is­mark­að­inum. Íbúðir selj­ast sam­dæg­urs, ekk­ert fram­boð er á íbúðum undir 30 millj­ónum, leigu­verð hefur hækkað um 50% á síð­ast­liðnum árum, fólk á þrí­tugs­aldri í for­eldra­húsum hefur fjölgað um 6000. Það eru stórar tölur í...

Illa leikið og end­ur­tekið efni- tvær stjörnur

Mikið rosa­lega var vand­ræða­legt að fylgj­ast með Bjarna Bene­dikts­syni í sjón­varp­inu í gær. Það er eins og hann verði verri í því að fara með ósann­indi með hverju árinu sem líður. Berum t.d. saman frammi­stöðu hans í Kast­ljós­inu 11. febr­úar 2015. (Myndband hér). Helgi Seljan: Hefurðu sjálfur átt við­skipti í gegnum það sem skil­greint er sem skatta­skjól, átt þar...

Gerum kjara­ráð gagn­sætt og fag­mann­legt

Auðvitað á kjara­ráð að vera skipað fag­mann­lega. Af fólki með reynslu af gerð kjara­samn­inga, með reynslu úr atvinnu­lífi eða verka­lýðs­fé­lögum. Svo er ekki, eins og Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata, benti á. Eins og staðan er í dag geta fjár­mála­ráð­herra, hæsti­réttur og Alþingi skipað fólk í kjara­ráð án rök­stuðn­ings. Fólk sem síðan birtir ekki hags­muna­tengsl sín. Einn vara­maður er...

Maður eða Svíi árs­ins?

Tíminn, sem er ekki áróð­urs­blað fram­sókn­ar­manna, heldur banda­rískt tíma­rit valdi Donald Trump sem mann árs­ins fyrir stuttu síðan. Það er senni­lega rétt­læt­an­legt í ljósi þess að mað­ur­inn er senni­lega með nafnið sitt í helm­ingum fyr­ir­sagna tíma­rits­ins þetta árið. Trump át upp allt sviðs­ljósið á árinu og skildi eftir sig svart hol tóm­leika og fáfræði. Auðvitað er það í sjálfu sér...

Mest lesið undanfarið ár