"Virðulegur forseti"

Þingmaður sem heldur ræður á alþingi þarf að ávarpa forseta þingsins með orðunum"virðulegur forseti."
Eins og ég hef margoft skrifað um þá fer virðing alþingis frekar niður en upp þessa dagana.
Þingmaður stjórnarliðs harmar það hvernig hann greiddi atkvæði gegn kjarabóta aldraða og öryrkja og lofar betrun. Hún varð afar lítil og frekar brosleg.
Formaður fjárlaganefndar gengur framhjá ræðumanni í ræðustól og hreytir út úr sér: "hálfviti".
Ekki er til fjármagn til þjóðarsjúkrahússins en samt fjármagn til að flytja tímabundið grjótvegg fyrir hálfan miljarð.
Forseti þingsins verður að beita allri sinni þolinmæði til að fá hljóð í þingsal þar sem þingmenn hrópa og kalla.
Til er fjármagn til að lækka skatta á hátekjufólk allt að 900 þúsund á ári en ekki til fjármagn til að efla íslenska tungu.
Stjórnarliðar tala um svik þegar ekki er farið með punkt og prik eftir samkomulagi um störf þingsins í sumar, á meðan svikið er loðið loforð um breytingu á stjórnarskrá.
Þetta fyrsta lýðveldi Íslands er laskað. Þá býr landið við þaulsetinn forseta sem ætlar að leggja það á þjóð að fara enn fram með því brambolti sem það kallar á.
Það þarf ný stjórnmál, nýja stjórnarskrá og nýjan forseta.
"Virðulegi forseti", ég hef lokið máli mínu.
Athugasemdir