Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.

Vinstrið vængbrotið

Vinstrið vængbrotið

„Hér var því hreyft í gær að innan stjórnarflokkanna yrðu menn að taka strategískar ákvarðanir með hliðsjón af hinni pólitísku stöðu. Óróleikinn í stjórnarsamstarfinu undir forsæti Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, meðal annars fyrir tilstuðlan hans er í ætt við gamalkunnugan kosningafirðing framsóknarmanna. Íhugi forystumenn stjórnarflokkanna ekki að boða til kosninga haustið 2016 ber það vott um skort á pólitísku hugmyndaflugi." Björn Bjarnason vefsíða 16.3.2016.

Þetta er landslagið í íslenskum stjórnmálum. Ekki það að skelfing hlýtur að fara um Björn Bjarnason að sjá sinn gamla flokk í Sherry-fylgi.

Margt er athyglisvert við fylgiskönnun MMR.

-Fylgi af A-flokkunum (Vg og SF) fer ekki yfir á Pírata og ekkert virðist stöðva fylgisfall sömu flokka. Er nú svo komið að fylgi jafnaðarmannaflokksins er orðið svipað og lægsta fylgi Alþýðuflokksins á sjöunda áratug síðustu aldar.

-Formanni Samfylkingar er varla sætt í sínu sæti og er vafalaust að bíða eftir hentugu tækifæri til að segja hug sinn.

-Formannsátök frambjóðenda hljóta að harðna og stefnan hlýtir að sveigjast til vinstri. Þvert á það sem núverandi formaður lagði til.

-Fleiri hljóta að koma fram og sækja í formannssætið.

Ekki er ég samt viss að stjórnarflokkarnir hafi sömu sýn og sá reyndi stjórnmálarefur Björn Bjarnason er.

Það á jú eftir að stagbæta stjórnarskránna.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni