Tíu spurningar til forsetaframbjóðenda

Nú þegar formlega eru komnir fram ein tylft af forsetaframbjóðendum er lag að spyrja þá nokkurra spurninga þó ekki væri annað en til þess að létta þá ákvörðun að skrifa á meðmælendalistann eða kjósa viðkomandi. Spurningarnar eru úr ýmsum áttum og fjalla að mestu um viðhorf til stjórnskipunar og stærri þjóðfélagsmála.
Forsetaframbjóðendurgeta sent mér svörin í pósti og þá verða svörin birt í sérstöku bloggi, skrifað svörin hér undirmáls eða á Facebook.
Ég geri ráð fyrir að fleiri spurningar vakni við þessar tíu spurningar og endilega bætið við.
Geri ekki ráð fyrir öðru en að forsetaefnin séu viljug að svara.
Hér koma spurningarnar:
1. Hvort hallast þú að tillögum Stjórnlagaráðs eða tillögum núverandi stjórnarskrárnefndar? Örstuttur rökstuðningur má fylgja.
2. Hvert er viðhorf þitt til undirskriftarlista Kára Stefánssonar, og mikilvægi heilbrigðisþjónustunnar?
3. Samkvæmt fréttum þá á maki forsætisráðherra lögmætar eignir í aflandsfélögum. Telur þú að málið sé nægjanlega reifað?
4. Telur þú að valdsvið forsetaembættisins sé nægjanlega skýrt og hvort ætti að auka völd hans eða færa það nær þjóðhöfðingjasessinum?
5. Ætti forsetinn að vera virkur álitsgjafi í þjóðmálum?
6. Undirritaður hefur þrívegis reynt að fá svör við spurningum til núverandi forseta án árangurs. Spurningar bæði sendar í snigla-eða tölvupósti: Hversu aðgengilegur ætti forsetinn að vera þjóð sinni?
7. Munt þú miðað við óbreytta mynd 26. greinar stjórnarskráarinnar beita framvísunarvaldi laga með svipuðum hætti og núverandi forseti?
8. Munt þú miðað við óbreytta mynd 26. greinar stjórnarskráarinnar framvísa kostnaðarbindandi lögum eða lögum þjóðréttarlega eðlis til þjóðar?
9. Ertu sömu skoðunar og núverandi forseti að löggjafarvald sé í höndum forseta og þjóðar, en alþingi hafi einungis frestandi löggjafarvald.
10. Telur þú að þingrofsrétturinn sé alfarið í höndum framkvæmdavalds eða kemur forseti að ákvörðun um þingrof?
Svar óskast.
p.s. Tvær spurningar hafa bæst við:
11. Ertu reiðubúin(n) að upplýsa alþjóð um hagsmunatengsl s.s. erlendar eignir?
12. Hvað telur þú eðlileg seta í forsetaembætti?
Athugasemdir