Stjórnarskrá: Óásættanleg drög
Þau drög sem nú virðast vera á borði stjórnarskrárnefndar eru að mínu mati óásættanleg.
Það er ekki eitt, það er allt.
Sem betur fer hefur ekki verið gengið frá sameiginlegu áliti og þess vegna staðan opin.
Berum saman.
Stjórnlagaráð:
„Stjórnvöld geta á grundvelli laga veitt leyfi til afnota eða hagnýtingar auðlinda eða annarra takmarkaðra almannagæða, gegn FULLU gjaldi og til tiltekins hóflegs tíma í senn.“
Hér er núverandi kvótakerfi kollvarpað og tímatakmörk innrömmuð. Orðin eru skýr og allir hafa sama skilning á orðinu "fullu".
Stjórnarskrárnefnd;
„AÐ JAFNAÐI skal taka EÐLILEGT gjald fyrir heimildir til nýtingar auðlinda sem eru í eigu íslenska ríkisins eða þjóðareign."
Hér er komið í veg fyrir útdeilingu kvóta sbr. markaðslausnum sem t.d. Píratar leggja til og hugnast mér. Hvar er svo "eðlilegt gjald"?
Stjórnlagaráð:
65. grein. Málskot til þjóðarinnar
Tíu af hundraði kjósenda geta krafist þjóðaratkvæðis um lög sem Alþingi hefur samþykkt. Kröfuna ber að leggja fram innan þriggja mánaða frá samþykkt laganna. Lögin falla úr gildi, ef kjósendur hafna þeim, en annars halda þau gildi sínu. Alþingi getur þó ákveðið að fella lögin úr gildi áður en til þjóðaratkvæðis kemur.
Þjóðaratkvæðagreiðslan skal fara fram innan árs frá því að krafa kjósenda var lögð fram.
Stjórnarskrárnefnd leggur til 15% þröskul.
Fleiri lýðræðisbætur og í átt að beinu lýðræði:
Stjórnlagaráð;
66. grein. Þingmál að frumkvæði kjósenda
Tveir af hundraði kjósenda geta lagt fram þingmál á Alþingi.
Tíu af hundraði kjósenda geta lagt frumvarp til laga fyrir Alþingi. Alþingi getur lagt fram gagntillögu í formi annars frumvarps. Hafi frumvarp kjósenda ekki verið dregið til baka skal bera það undir þjóðaratkvæði svo og frumvarp Alþingis komi það fram. Alþingi getur ákveðið að þjóðaratkvæðagreiðslan skuli vera bindandi.
Atkvæðagreiðsla um frumvarp að tillögu kjósenda skal fara fram innan tveggja ára frá því málið hefur verið afhent Alþingi.
-0-
Stjórnarskrárnefnd stefnir að því að ljúka störfum fyrir 22.janúar. Enn er því tími til skoðunnar.
Í ljósi þess að kjósendur hafa í þjóðaratkvæðagreiðslu 20.október 2012 samþykkt að hafa frumvarp Stjórnlagaráðs til grundvallar, er einsýnt að tvö álit komi frá nefndinni.
Annað eru svik.
Athugasemdir