Stjórnarskrá: Hvort er réttara?

Því miður eru ekki miklar umræður um breytingar á stjórnarskrá. Ég reyni þetta á eigin skinni því blogg mín um það málefni fær ekki mikla lesningu. Tveir gerendur í stjórnarskrárferlinu hafa skrifað um upplifun sína á ferlinu síðustu daga:
"Hvað sem öðru líður þá verður sú staðreynd ekki umflúin að á síðasta kjörtímabili var ekki þingmeirihluti til að keyra stjórnarskrána í gegn. Þingmenn stjórnarandstöðunnar kærðu sig kollótta um úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar og voru ekkert viljugri til samræðu eftir hana en fyrir. Ég viðurkenni fúslega að sú óbilgirni kom mér í opna skjöldu. – En svo lengi lærir sem lifir." Valgerður Bjarnadóttir 07/02/2016 Herðubreið.
Björn Valur Gíslason varaformaður Vinstri grænna er skýrmæltari:
"Alþingi samþykkti þá að skipa sérstakt stjórnlagaráð og bauð þeim sem fengið höfðu kosningu á stjórnlagaþingið að taka sæti í ráðinu. 21 þingmaður lagðist gegn því að stjórnlagaráð yrði skipað, allt þingmenn hægriflokkanna að Lilju Mósesdóttur undanskilinni.[...]
Hægriflokkarnir börðust allt síðasta kjörtímabil af hörku gegn breytingum á stjórnarskránni. Undir lokin fengu þeir svo stuðning úr óvæntustu átt þegar þingmenn Hreyfingarinnar lögðu fram vantraust á ríkisstjórn vinstriflokkanna vegna málsins. Báðir formenn hægriflokkanna sögðust myndu styðja vantraustið þótt þeir væru ósammála málatilbúnaðinum á bak við tillöguna!" (Tekið af bloggi Björns)
Vinstri stjórnin sem mynduð var eftir kosningar 2009 hafði 34 þingmenn sér til stuðnings í upphafi. Þetta segir á Wikipetia:
-Undanliðið kjörtímabil einkenndist af hörðum deilum um mörg stór mál á borð við aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu, Icesave, stjórnarskrármál og breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Í ýmsum málum var ekki samstaða innan stjórnarmeirihlutans á þingi og gengu nokkrir þingmenn úr þingflokkum stjórnarflokkanna þannig að síðustu mánuði sína í embætti var stjórnin í raun minnihlutastjórn sem naut hlutleysis óflokksbundinna þingmanna.- (2013)
Stóra spurningin er hvort féll stjórnarskrármálið innan frá eða utanfrá?
Ég held að hvort tveggja sé rétt.
Athugasemdir