Þessi færsla er meira en 8 ára gömul.

Stjórnarskrá: Festum bráðabirgðaákvæðið

Stjórnarskrá: Festum bráðabirgðaákvæðið

Nú er ljóst að ekki verður samkomulag um þynntu útgáfu stjórnarskrárnefndar alþingis. Það er vika í fyrsta þingfund og enn hefur ekki verið gefið upp kjördagur. Það eitt mun hafa áhrif á störf þingsins.

Mér dettur því í hug að festa það bráðabirgðaákvæði sem þó er í stjórnarskránni og er aðferð til að komast hjá kosningum ef stjórnarskrá er breytt:

- [Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 79. gr. er heimilt, fram til 30. apríl 2017, að breyta stjórnarskránni með eftirfarandi hætti:
Samþykki Alþingi frumvarp til laga um breytingu á stjórnarskrá með minnst 2/3 hlutum greiddra atkvæða skal það borið undir atkvæði allra kosningarbærra manna í landinu til samþykktar eða synjunar. Atkvæðagreiðslan skal fara fram í fyrsta lagi sex mánuðum og í síðasta lagi níu mánuðum eftir samþykkt frumvarpsins á Alþingi.
Til þess að frumvarpið teljist samþykkt þarf það að hafa hlotið meiri hluta gildra atkvæða í þjóðaratkvæðagreiðslunni, þó minnst atkvæði 40 af hundraði allra kosningarbærra manna, og skal það staðfest af forseta lýðveldisins og telst þá gild stjórnarskipunarlög.
Í heiti frumvarps til stjórnarskipunarlaga á þessum grundvelli skal koma fram tilvísun til ákvæðis þessa.- Um þjóðaratkvæðagreiðsluna fer samkvæmt lögum.]-

Með þessari festingu má koma af stað þrepabreytingum á stjórnarskrá án þess að þurfi að rjúfa þing.

En líklegast er ekki einu sinni samkomulag um slíka breytingu.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni