Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.

Stjórnarskrá: Eitrað peð?

Stjórnarskrá: Eitrað peð?

Mér er minnisstætt í skákeinvígi aldarinnar 1972 þegar Fisher lék óvænta biskupsfórn á h2. Peðið var eitrað eins og sagt er á skákmáli.

Eini stjórnmálaflokkurinn sem hefur lýst einarðlega yfir stuðningi við tillögur Stjórnlagaráðs eru Píratar. En það setur flokkinn líka í vanda. Kynning á hugmyndum Pálsnefndarinnar sýnir að einungis er tekið á broti af frumvarpi Stjórnlagaráðs. Margir telja jafnframt að tillögur Pálsnefndar séu ansi útþynntar. 

Vandi Pírata er sá hvort eigi að mæla með tillögum Pálsnefndarinnar og vona að þar með opnist á frekari breytingar, eða hafna þessum hugmyndum alveg, og treysta á að fylgið skili sér í alþingiskosningum og breyta stjórnarskrá eftir stutt kjörtímabil.

Er tillaga Pálsnefndarinnar eitrað peð Pírata?

 

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni