Þessi færsla er meira en 8 ára gömul.

Sótt að formanni Framsóknarflokksins

Sótt að formanni Framsóknarflokksins

Sigmundi Davíð Gunnlagssyni formanni Framsóknarflokksins var tamt að tala um loftárásir þegar hann fékk á sig gagnrýni. Yfirleitt talaði formaðurinn í hæsta stigi og í heimsmetum.

Nú er sótt að framsóknarformanninum og þá einna helst innan búðar. Að vísu gerði ræða hans á miðstjórnarfundi fyrir norðan honum ekki gott eða málstað hans.

Og nú er svo komið að krosstréin frá Brúnum bresta. Eiginkonu Sigmundar misminnir líklegast hvað varðar friðarstól formannsins því bæði var sótt að Guðna Ágústssyni og Jóni Sigurðssyni á formannsstóli. Sá síðarnefndi hefur skilmerkilega (fyrir löngu) sagt formanninum að taka pokan sinn.

Þetta er svo sem ekki nýtt þetta með loftárásir og laumuspil innan Framsóknarflokksins. Jónas Jónsson  frá Hriflu sat ekki í mollu og kyrru. Flestir hnífaköstin komu innanbúðar.

Ég hafði hálft í hvoru ætlað mér að skrifa um stöðu formannsins en sé að þetta eru orðin hrein eftirmæli.

Vonandi tekur sláturtíðin fljótt af þetta haustið.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni