Sorpmenn Íslands

Mikil upræða hefur skapast í dag. Umræðuefnið er sorp. Ekki tengt sorpblaðamennsku heldur almennt sorp. Skilningur manna er æði misjafn á því hvað almennt sorp er. Þeir stjórnmálamenn sem tala um almennt sorp og þá mikla þýðingu að hirða það frá dyrum neytenda á innan við viku eru enn staddir 1954.
Almennt sorp er í raun það sorp sem á ekki heima í plasti, pappír eða lífrænum úrgangi. Var reyndar minntur á að kúkableija telst ekki til lífræns úrgangs!
Í Kópavogi þar sem ég bý er sérleg pappírstunna auk venjlegrar tunnu. Það þyrfti að laga svipað og gert er í Reykjavík. Menn geta kynnt sér það á vefsíðunni ekkirusl.is
Fyrir norðan í Eyjafirði flokka menn enn betur. Þar er samlag um moltugerð svo tunnan þar er tvískipt, með lífrænt hólf. Pappír er svo settur í grenndargáma.
Ég læt svo fylgja með hvernig ég losa mig við lífrænan úrgang. Þaðan fer moldin í blómakerin sem eru á svölum íbúðarinnar.
Gleðilegt sorpár!
Athugasemdir