Solla vekur upp draug

Tveggja lína athugasemd Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur á Facebook hefur vakið upp draug í Samfylkingunni sem allir héldu að búið væri að jarðsetja.
En eins og í þjóðtrúnni þá vakna draugar við vissar aðstæður. Aðstæðurnar eru þessar: 1. Gengi Samfylkingarinnar í skoðanakönnunum er 8-9%. 2. Þrýstingur á flokksforystu varð svo mikill að formannskjöri og landsfundi er flýtt um hálft ár. 3. Frambjóðendur til formanns koma fram og meinleg athugasemd alla leið frá Tyrklandi, um einn þeirra vekur athygli. Athugasemdin er um mál sem er ógróið innan Samfylkingarinnar. Sópað undir teppið.
Þar sem fennir yfir atburði skal ég lyfta teppinu, niðurstaða Atla nefndarinnar:
Fulltrúar Vinstri grænna, Atli Gíslason og Lilja Rafney Magnúsdóttir, Birgitta Jónsdóttir frá Hreyfingunni og Eygló Harðardóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson fulltrúar Framsóknarflokksins vilja kalla ráðherrana fjóra fyrir landsdóm.
Fjórir þingmenn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks voru á öðru máli. Magnús Orri Schram og Oddný Harðardóttir, þingmenn Samfylkingar, telja að Geir, Ingibjörg og Árni eigi að mæta landsdómi en ekki Björgvin G. Sigurðsson.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins þær Unnur Brá Konráðsdóttir og Ragnheiður Ríkharðsdóttir töldu að ekki ætti að ákæra neinn af ráðherrunum fyrrverandi og lögðu því enga þingsályktunartillögu fram.
En fleiri vildu sakfella alla:
"Oddný Harðardóttir, Samfylkingunni, situr í Atlanefndinni og leggur til að Geir Haarde, Árni Mathiesen og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fari fyrir landsdóm. Í ræðu sinni færði hún einkum rök fyrir því hvers vegna hún telji að ekki beri að sækja Björgvin G. Sigurðsson til saka. Sagði hún Geir og Ingibjörgu hafa farið inn á valdsvið Björgvins, hann hafi ekki verið upplýstur um mikilvæg mál eða setið mikilvæga fundi og hann hafi ekki undirritað yfirlýsingu um gjaldeyrisskipti við norrænu seðlabankana." (bjorn@frettabladid.is)
Það má því ætla að ef Oddný Harðardóttir gefi kost á sér til formennsku komi annað skeyti frá Tyrklandi.
Athugasemdir