Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.
Skattaskjól og skrattakollar

Smátt og smátt áttar fólk sig á því að það er ekki í lagi að geyma fé sitt á skattalágsvæði. Bara heitið gefur til kynna að viðkomandi er að koma sér undan að greiða jafn hátt hlutfall af tekjum sínum og almennur launþegi. Auk þess þarf launþeginn að fjármagna gengisfall krónunnar í færri krónum, ekki aflendingurinn.
Sagt er að leikurinn sé ójafn.
Enn verra ef sá sem er aflendingur semur jafnframt leikreglur skattinnheimtunnar.
Til dæmis forsætisráðherra, jafnvel fjármálaráðherra?
Má ekki líkja því við að gefa brennuvargi eldspýtur og gera hann að brunaliðsstjóra?
Er þetta svona í öðrum löndum en Aflandi?
Athugasemdir