Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.

Sigmundur sýnir auðlegðarskattinn

Sigmundur sýnir auðlegðarskattinn

Það er vissulega ánægjuefni að stjórnmálamenn vilji bæta sig og skýra betur málstað sinn. Með birtingu skattagagna sinna hallar á Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra og sjálfan forsetann.

Það skýrasta við framlagninguna er að hér sést skýrlega auðlegðarframlag Sigmundar og konu hans. Sjálfur lagði hann þennan skatt af ásamt fjármálaráðherra 2013. Þetta eru heilar 85 miljónir.
Staðan væri önnur í heilbrigðismálum ef skatturinn hefði verið þó ekki nema ár í viðbót.

En Ingi Freyr Vilhjálmsson í bloggi hér á Stundinni bendir á:

-"Athygli vekur að Sigmundur Davíð birtir ekki upplýsingar um eigin skattskil á árunum 2007 til 2009 en hann var sjálfur hluthafi í Wintris fram til loka árs 2009. Fjármagnstekjur sem komu frá Wintris áður en hann seldi konu sinni hlut sinn með málamyndagerningi í árslok 2009 eru því einnig fjármagnstekjur hans. [...] Eitt af því sem vekur athygli við þessa upplýsingagjöf Sigmundar Davíðs er því hvað hann segir ekki. Af hverju birtir hann ekki skattaupplýsingar um sjálfan sig á þeim tíma þegar hann átti hlut í Wintris á móti konu sinni? Út frá upplýsingunum að dæma er eins og hann hafi aldrei hlut í Wintris þrátt fyrir að sýnt hafi verið fram á annað.-"

Einnig vekur athygli að hann skilar ekki svoköllu CFC-framtali sem myndi skýra stöðuna enn betur.

En nú er að sjá hvort fjármálaráðherra hafi dug í sér að birta sitt framtal á sama hátt.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni