Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.

Sátta- eða stríðstónn?

Sátta- eða stríðstónn?

"Loksins",  kom í huga minn þegar fyrstu fréttir bárust af viðræðufundi forsætisráðherra og stjórnarandstöðu. Fréttir virtust þannig:

-Formenn stjórnarandstöðuflokkanna áttu fund með forsætisráðherra í morgun. Eftir fundinn sagðist stjórnarandstaðan vera nokkuð sátt.-

Og . . :

„Mér fannst vera góður andi á þessum fundi og sýndi að mínu viti áhuga hans á að breyta aðeins um takt í samskiptum ríkisstjórnar við stjórnarandstöðu,“ sagði Árni Páll.

Eftir hádegi var breyttur tónn. Á alþingi (enn með litlum staf) varð allt vitlaust og mikill bjöllusláttur.

Verður þetta svona fram á sumar?

Ég get alveg skilið að stjórnarandstaðan vilji fá sem fyrst upplýsingar um málaáherslur og kosningadag að hausti.

Ég skil forsætisráðherra þannig að þetta muni koma fram "næstu daga".

Er ekki ráð að stjórnarandstaðan láti reyna á það?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni