Samfylkingardraumnum lokið?

Magnús Orri Schram skrifar athyglisverða grein í Fréttablaðið í dag. Heiti greinarinnar er viðeigandi: -Verum hugrökk-. Hann skrifar:
Til að hreyfing jafnaðarfólks geti þróast í takt við tímann verðum við að vera tilbúin til að byrja upp á nýtt. Það vil ég að Samfylkingin geri. Við eigum að skapa nýjan sameiginlegan vettvang fyrir flokksfólk og fólk sem er sammála okkur í pólitík en er utan flokka eða í öðrum stjórnmálaflokkum. Fólk sem hefur frjálslyndi, félagshyggju, femínisma og jöfnuð að leiðarljósi. Fólk sem vill ekki vera hluti af fortíðinni en hefur brýnt erindi við samtímann. Hreyfing með nýja talsmenn með nýjar hugmyndir.
Magnús Orri vill svo hefja sameingarferli líkt og gert var um síðustu aldamót.
Ekki eru allir hoppánægðir með hugmynd Magnúsar Orra. Kratakempan og eldhuginn Björgvin Guðmundsson skrifar á Facebook:
UPPGJAFATÓNN FORMANNSFRAMBJÓÐANDA
Magnús Orri Schram,sem er í framboði til formanns í Samfylkingunni skrifar grein í Fréttblaðið í dag,sem einkennist af uppgjafatón.Slæmar skoðanakannanir hafa farið illa með Magnús og fleiri í Samfylkingunni. Athyglisvert er, að bera saman Framsókn og Samfylkinguna.Framsókn hefur tapað miklu meira fylgi en Samfylkingin frá síðustu kosningum.Framsókn virðist hafa tapað 17-18 prósentustigum frá síðustu kosningum. Samfylkingin hefur tapað 6 prósentustigum .En Framsóknarmenn virðast sallarólegir þrátt fyrir það. Þeir segja alltaf: Við fáum miklu meira í kosningum en i könnunum.Þetta er góð trú.Forustumenn Samfylkingarinnar eru ekki eins trúaðir. En þeir verða að taka sér tak. Og þeir þurfa að leggja meiri áhersu á mál jafnaðarstefnunnar, svo sem eflingu almannatrygginga og fyrst og fremst bætt kjör þeirra lægst launuðu meðal aldraðra og öryrkja,bætt kjör láglaunafólks,félagslegar lausnir í húsnæðismálum (endurreisn verkamannabústaðakerfis), aukinn jöfnuð í þjóðfélaginu með aðgerðum í skattamálum og fleiri ráðstöfunum o.s.frv. Einnig á Samfylkingin að hefja strax viðræður við aðra flokka á vinstri vængnum um kosningabandalag í þingkosningunum í haust. Það er ekki nóg að tala um einhvers konar samstarf það þarf að koma því í framkvæmd og láta hendur standa fram úr ermum.Það er enginn tími fyrir aðgerðarleysi. Björgvin Guðmundsson.
Stefán Pálsson sagnfræðingur og spurningasemjari setur fram sitt álit:
Fátítt - en ekki alveg óþekkt.
Murdo Fraser bauð sig fram til formanns í skoska íhaldsflokknum 2011. Flokkurinn var í sögulegu lágmarki og Fraser, sem talinn var sigurstranglegastur, lagði upp með það að leggja niður flokkinn og stofna nýjan á grunni hans. - Hann fékk 45%, en Ruth Davidson hlaut 55% í seinni umferð formannskjörsins. Í síðustu viku vann Íhaldsflokkurinn í Skotlandi svo kosningasigur undir stjórn Davidson og fór framúr Verkamannaflokknum í fylgi. Stefán Pálsson.
Það er því ekki samhljómur hjá íslenskum vinstri mönnum.
Athugasemdir