Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.
Sálmalesarinn

Nýjustu botnleðjufregnir af Morgunblaðinu herma að val á núverandi sálmalesara sé dularfullt.
"Þröstur Helgason, dagskrárstjóri Rásar 1, segir það ekki óeðlilegt að Mörður Árnason hafi verið fenginn til að lesa Passíusálmana í ár en Mörður er stjórnarmaður í Ríkisútvarpinu ohf. og varaþingmaður Samfylkingarinnar."
Það merkir að spurning blaðamannsins hefur verið á þessa leið:
"Telur þú eðlilegt að stjórnarmaður í RÚV og varaþingmaður lesi þessa sálma þjáningar?"
Í þessu felst einnig að til sé ákveðinn hópur fólks sem séu hinir útvaldir sálmalesarar.
Vonandi hef ég rangt fyrir mér.
Ég sé fyrir mér ágætis sálmalesara.
Hann heitir Davíð Oddson.
Helgi Hóseason hefði átt að lesa hér um árið.
En Mörður er fínn.
Athugasemdir