SALEK og Tortola

Skipting auðs hefur alltaf verið barátta um brauðið síðan skipulögð verkalýðsfélög voru stofnuð. Hér á landi í heila öld. Auðvaldið, eins og atvinnurekendur hafa verið kallaðir hefur haft fram á þessa öld gott verkfæri til að "laga" stöðuna sér í hag. Tæki þetta er gengisfelling. Þeir sem fá allt sitt í krónum voru því háðir því að stjórnvöldum var ekki stýrt af útgerðarvaldinu sem einna helst hefur tök á því að búa við aðra gjaldmiðla. Þegar Ísland tengdist nánar erlendum fjámálakerfum var erfiðara að fella gengið og ná þannig til baka landsauðnum. En nú er komið nýtt ójafnaðartæki sem kemur nánast í staðinn fyrir gengisfellingu. Það er SALEK.
SALEK er skammstöfun fyrir samstarf um launaupplýsingar og efnahagsforsendur kjarasamninga. SALEK er afrakstur vinnu sem hófst 2013 með úttekt BSRB, KÍ, BHM, ASÍ, SA og samninganefnda ríkis, Reykjavíkurborgar og Sambands íslenskra sveitarfélaga á umhverfi kjarasamninga á hinum Norðurlöndunum, þar sem áhersla var lögð á heildarendurskoðun samningalíkansins.Með samstarfinu vilja heildarsamtökin stuðla að því að bæta þekkingu og vinnubrögð við undirbúning og gerð kjarasamninga með Norðurlöndin sem fyrirmynd. Markmiðið er að auka kaupmátt á grundvelli lágrar verðbólgu, lágra vaxta og stöðugs gengis. Á hinum Norðurlöndunum hefur tekist að auka kaupmátt tvisvar sinnum meira á ári á síðustu 15 árin en hér á landi. Auk þess er samkomulaginu ætlað að stuðla að friði á vinnumarkaði og auknum stöðugleika.(www.asi.is)
Hér eru boðnir grænir skógar og gull fyrir samningsréttinn. Í raun eru þetta nýja tekjuójafnaðartæki auðvaldsins og nú með aðstoð launamanna. Að fullyrða að þannig megi auka kaupmátt eins og dæmin sanna er í minnsta falli misskilningur. Við búum við allt annað hagkerfi og fjárflóttaleiðir margar.Furða að ekki hafi verið rætt meir um þetta samkomulag.
Þannig geta þeir sem gæta auðsins lagst á Tortólasólbekkinn sinn án átaka. SALEK sér um sína.
Athugasemdir