Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.

Rússíbanareið

Rússíbanareið

Sjaldan eða aldrei hafa pólitísk tíðindi borist og breyst jafn mikið á jafn stuttum tíma í íslenskri stjórnmálasögu, held ég.
Forsetinn fráfarandi talaði um að ekki lengur væri hægt að tala um að vika væri langur tími í pólitík, dagur er réttara heiti.

Sannkölluð rússíbanareið síðasti sólarhringurinn.

Í gær kom einn frambjóðandi, það er Davíð Oddson og innan sólarhrings var annar frambjóðandi Ólafur Ragnar Grímsson hættur við, aftur.

Það er of snemmt að segja hvaða áhrif þetta hafi á kosningabaráttuna almennt. Eitthvað segir mér að Davíð muni fara sér hægt í byrjun en reyna svo með smjörklípum og látum sviðsetja atburði, honum í hag.

Fyrir Davíð er þetta einungis ferð til að sýna sögunni að hann nái ef til vill þriðjung atkvæða.

Sá sem glaðastur yrði yfir ósigri Davíðs yrði Ástríður kona hans. En eitt er víst að Davíð fer þá út úr stjórnmálum með sama orrystuþyt og hann kom inn fyrir 40 árum.

"Þú verður að fara á Facebook", var ráðlegging núverandi formanns Sjálfstæðisflokksins við Davíð.

Ég er ekki viss að Davíð fari yfir á Facebook eða Twitter. Hugsanlega stuðningsmenn hans.

Mér dettur í hug ljóð Tómasar Guðmundssonar, Fjallganga:

-Segja löngu seinna frá því:
„Sjáið tindinn, þarna fór ég!
Fjöllunum ungur eiða sór ég,
enda gat ei farið hjá því,
að ég kæmist upp á tindinn.(TG)

Davíð hefur klifið flesta tinda íslenskra stjórnmála og horfir til Bessastaða.

Ég er ekki viss að það klif takist.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni