Rök Árna Páls

Athygli manna beinist að flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar í dag. Í ræðu (fráfarandi?) formanns Samfylkingarinnar kom eftirfarandi fram:
"Það er bara eitt sjónarmið sem ég hef heyrt fleygt í umræðunni undanfarna daga sem ég er hjartanlega ósammála og það er sú staðhæfing að jafnvel þótt breytingar séu góðar eigi ekki að samþykkja þær því þá gætu þær mögulega útilokað eða tafið frekari stjórnarskrárbreytingar, jafnvel tekið þær af dagskrá í 30 ár. Hver ætti að taka kröfuna um frekari breytingar af dagskrá? Við?"
Hér veit Árni Páll betur. Það eru fleiri þættir sem koma máli á dagskrá eða að mál deyja. Hvað segir reynslan um breytingar á stjórnarskrá? Breytingar á stjórnarskránni utan breytingar á kjördæmaskipan eru fáar utan mannréttindaákvæðið um aldamótin. Nógu erfitt hefur verið að koma grunnkröfu búsáhaldabyltingarinnar um heilstæða breytingu.
Veit Árni Páll ekki betur?
Hann heldur áfram:
"Flestir vita að Jón Baldvinsson náði Vökulögunum fram 1921. Það var gríðarlegur og sögulegur sigur sem tryggði sjómönnum sex stunda hvíld, kom í veg fyrir þrælkun og bjargaði lífi og limum sjómanna. Færri vita að Jörundur Brynjólfsson, fyrsti þingmaður jafnaðarmanna, lagði fram frumvarp sama efnis 1919 en um 8 stunda hvíld. Það var fellt. Honum var bent á við þinglega meðferð að hann gæti mögulega komið sex stundum í gegn, en lét ekki á það reyna. Var hann prinsíppmaður af því hann kvikaði ekki frá ítrustu kröfum? Voru sex stundirnar hans Jóns Baldvinssonar þá eftir alltsaman svik en ekki sigur? Auðvitað ekki."
Svolítið ósanngjörn framsetning þegar nánar er skoðað. Frá 1919 hafði Sjómannasamband Íslands tekið upp baráttuna og settu á oddinn tímana sex.
Þannig komst málið á dagskrá.
Svo mikinn byr fékk málið að það var afgreitt frá efri deild þrátt fyrir mótmæli íhaldsmanna.
Fyrir utan það þá er mikill munur á kjararéttindamáli og breytingu á stjórnarskrá.
Ef skoðaðar eru breytingar á stjórnarskrám Norðurlanda þá má sjá að stjórnarskrár breytast ekki í þrepum yfir árabil.
Samþykktar stjórnarskrár taka málið AF dagskrá.
Sem betur fer hafði flokkstjórn SF og framkomnir formannsframbjóðendur vit fyrir formanninum.
Í lokin skal tekið undir með Þorvaldi Gylfasyni:
Það er móðgun við kjósendur ef ekki verður kosið jafnframt um útþynnta tillögu Pálsnefndarinnar og frumvarp Stjórnlagaráðs.
Athugasemdir