Reykfylltu gagnaherbergin

Áður fyrr var talað um reykfylltu bakherbergin. En það var fyrir tíð tölvualdar.
Ég veit um tvö gagnaherbergi. Eitt er gagnaherbergi Borgunar eingöngu fyrir Landsbankann, sem hann virðist ekki hafa notað, hitt fyrir alþingismenn um upplýsingar sem þola ekki dagsljósið. Ég hélt satt best að segja að slíkt ógegnsæi tilheyrði sögunni eftir Hrun. Var ekki helsta baráttumálið -meira gegnsæi- eftir skýrslu RNA? Þarf ég kannski að upplýsa hvað RNA stendur fyrir! Eitthvað sem þvældist fyrir okkur, segir núverandi innanríkisráðherra.
En skaðinn er skeður. Bankamenn enn í sömu skítaholunni.
Trúnaðarbrestur.
Geir Guðsteinsson, blaðamaður skrifar á FB vegg sinn:
"Bankastjóri Landsbankans er stöðugt spurður um Borgunarmálið og hvort engin þekking hafi legið fyrir um stöðu Borgunar. En hvað með stjórnarmenn Landsbankans, könnuðu þeir ekki heldur stöðu mála? Þetta fólk ætti að hafa þekkinguna en þau eru; Tryggvi Pálsson, formaður, sem hefur víðtæka reynslu á fjármálamarkaði og hefur gegnt leiðandi hlutverki í rekstri fjölmargra fjármálafyrirtækja. Eva Sóley Guðbjörnsdóttir, varaformaður, er fjármálastjóri Advania á Íslandi.Danielle Pamela Neben starfar í dag sem sjálfstæður ráðgjafi en hún starfaði hjá HSBC bankanum, sem er einn stærsti banki heims. Helga Björk Eiríksdóttir Helga Björk Eiríksdóttir er framkvæmdastjóri Integrum, sem starfar á sviði fasteignaþróunar og ráðgjafar. Jón Sigurðsson hefur víðfeðma rekstrar- og stjórnunarreynslu. Kristján Davíðsson Kristján Þ. Davíðsson hefur starfað sem framkvæmdastjóri Isder ehf. síðan 2009. Hann er með skipstjórnarpróf frá Stýrimannaskóla Íslands og meistaragráðu í sjávarútvegsfræði frá Háskólanum í Tromsö í Noregi. Jóhann Hjartarson Jóhann Hjartarson hefur verið yfirlögfræðingur Íslenskrar erfðagreiningar ehf. frá árinu 1998, en var einnig yfirlögfræðingur deCODE genetics Inc. á árunum 1998-2009."
Ætlum við að láta bjóða okkur þetta -aftur?
Athugasemdir