Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.

Ólafur og óvissutímar

Ólafur og óvissutímar

Þá vitum við það. Í þetta sinn er það forsetinn sem hefur talað. Hugsanlega hefur honum verið sent þessi texti:

"Þótt þjaki böl með þungum hramm,
þrátt fyrir allt þú skalt, þú skalt,
samt fram, þú skalt samt fram,
þú skalt samt fram."
(Þú álfu vorrar yngsta land. Höfundur:Hannes Hafstein)

Ef ég skil rök forsetans rétt þá eru rökin aðallega þessi:

* Óvissan í efnahags-, siðferðis- og stjórnmálasviði þjóðlífs er með þeim hætti að hann geti ekki líkt og skipstjóri í sjávarháska yfirgefið fleyið á örlagastundu. Yfirvofandi sé stjórnarkreppa eftir kosningar í haust og reyni þá á reynslu og inngrip forseta.

* Fjöl-, fjölmargir hafi komið á máli við forsetann og skorað á hann að gefa kost á sér, jafnvel heilt dvalarheimili aldraða.

Þetta eru góð og gild rök en. . .eru þetta einu rökin?

Má ekki ætla að með nýjum róttækum forseta rætist versta martröð elítunnar eða kjarnræðisflokkana? Hin "skelfilegu" stjórnarskrárdrög Stjórnlagaráðs komi fram og verði upp vakin úr gröf sinni?

Gæti verið að ansans Evrópusambandið vakni líka? Að þjóðin fái að ráða?

Getur verið að framundan sé einmitt löng barátta valdablokka um yfirráð? Fyrst með forsetakosningum og síðar alþingiskosningum?

Er það ekki einstakt að fimm mínútum eftir tilkynningu forsetans lýsi forsætisráðherra landsins yfir blessun sinni á þessa ákvörðun?

Það eru reyndar margir sem skilja ekki alla þessa óvissutíma Ólafs sem líklegast hafa verið frá lýðveldisstofnun.

Ástæða óvissunnar sé tvö atriði: Stagbætt stjórnarskrá og Ólafur Ragnar Grímsson.

 

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni