Nýtt umbótabandalag?

Þingflokksformaður Pírata Birgitta Jónsdóttir vill drög að stjórnarsáttmála fyrir kosningar.
Það er stórfrétt.
Einna helst minnir þetta á umbótabandalag Alþýðuflokks og Framsóknarflokks 1956:
Hræðslubandalagið (Upphaflega nefnt Umbótabandalagið eða Bandalag umbótaflokkanna af stofnendum sínum) var kosningabandalag Alþýðuflokks og Framsóknarflokks í Alþingiskosningunum 24. júní 1956. Flokkarnir gerðu með sér samkomulag um að stilla ekki fram frambjóðendum gegn hvor öðrum í sömu kjördæmum. Nýta átti kjördæmaskipunina til að ná meirihluta þingmanna án þess að hafa meirihluta kjósenda á bak við sig. Það mistókst naumlega því að Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur fengu 25 þingmenn af 52 en hefðu þurft 27 til að fá hreinan meirihluta. Þennan fjölda þingmanna fengu flokkarnir tveir út á 33,9% atkvæða en höfðu fengið samanlagt 37,5% atkvæða og 22 þingmenn í kosningunum árið 1953. [...]
Hræðslubandalagið stefndi að uppsögn varnarsamningsins við Bandaríkin. Bandalagið var stofnað í kjölfar þess að Framsóknarflokkurinn rauf stjórnarsamstarf við Sjálfstæðisflokkinn 27. mars 1956. (Wikipetia)
Þessir flokkar mynduðu svo stjórn með Alþýðubandalagi.
Nú verður fróðlegt að sjá hvort málamiðlunarsamningur verði saminn fyrir kosningar.
Athugasemdir