Samfylkingin: Formannsslagur framundan?

Það er alltaf fróðlegt þegar forystufólk stjórnmálaflokks stígur fram og viðurkennir mistök.
Þetta er allt of fágætt í íslenskum veruleika en formaður Samfylkingarinnar viðurkennir mistök.
Hér er upptalning formannsins:
Kjarninn okkar -Við misstum það nána samband sem við höfðum haft við verkalýðshreyfinguna og talsambandið við atvinnulífið.
Icesave Við studdum samning um Icesave sem varði ekki ítrustu hagsmuni þjóðarinnar og mæltum gegn þjóðaratkvæðagreiðslu um hann.
Aðildarumsóknin Við byggðum aðildarumsókn að ESB á flóknu baktjaldasamkomulagi, sem aldrei hélt, í stað þess að fá skýrt umboð frá þjóðinni til að fara í aðildarviðræður, [...]
Skuldir heimilanna Þegar fólk var að drukkna í skuldafeni tókum við að okkur í of ríkum mæli að útskýra fyrir fólki að það ætti að borga skuldir sínar, í stað þess að taka okkur stöðu með fólki gegn fjármálakerfi.
Fiskveiðistjórnunin Við lofuðum breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfi en týndum okkur í langvinnum samningum fyrir luktum dyrum [...]
Stjórnarskráin Við höfðum forgöngu um stjórnarskrárbreytingar, en drógum það alltof lengi að áfangaskipta verkefninu [...].-"
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifar í kvöld á FB: Í janúar 2014 birtist þessi grein eftir mig í "Jafnaðarmanninum" fréttabréfi Samfylkingarinnar í Reykjavík. Ég tel rétt að endurbirta hana núna í tilefni af bréfi formanns Samfylkingarinnar til flokksmanna í dag. Þetta voru skoðanir mínar þá og eru svo sem enn að mestu. En nú eru tvö ár liðin frá birtingu greinarinnar, nær þrjú ár frá kosningatapinu og rúmt ár í næstu kosningar. Hvers vegna barst bréf formannsins svona seint? Er ekki hlutverk formanns að leiða stefnumörkun flokksins og gera upp við kosningaósigur? Það er ljóst af grein minni að vilji var til slíks uppgjörs í flokknum og enginn að kasta af sér ábyrgð, þó ekki væru allir sammála um ástæður fyrir slakri stöðu flokksins. Góðar stundir!-"
Bréfið er all langt en að mestu leyti samhljóða mistakalista formannsins.
-
Nú er spurningin þessi. Er hafinn baráttan um formannssætið?
Athugasemdir