Loforðið um kosningar

Annað hvort þjáist landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra af minnisleysi eða hann treystir á gullfiskaminni kjósenda.
Reyndar er það svo að ef ég hefði verið beðinn að búa til áætlun til að styrkja og styðja við kröfuna um flýtingu alþingiskosninga þá hefði ég mælt með málsvörn Gunnars Braga Sveinssonar. Rök hans eru svo fjarstæðukennd að afstaða manna herðist á kröfunni um kosningar.
Í huga Gunnars Braga er upplýsingar um kjördag spurning um taktík. Í huga hans er ekki ást á lýðræði og eðlilega kröfu kjósenda um kjördag. Bæði væntanlegir frambjóðendur og kjósendur þurfa að vita slíkt og má vísa í kosningalög.
Í huga Gunnars Braga er bara eitt afefli. Afefli að sitja að völdum og kjötpottum.
Svo það sé öllum ljóst þá var loforð um flýtingu kosninga gefið almenningi. Til þess þurftu 22 þúsund manns á Austurvöll.
Athugasemdir