Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.

Kostar líka að vera öryrki, Vigdís

Kostar líka að vera öryrki, Vigdís

Hún Vigdís Hauksdóttir má eiga það að hún segir oft það sem aðrir í forystu stjórnarliða hugsa. Að vísu kemur þetta stundum ansi öfugsnúið en þó ekki þetta tilsvar með samanburð á öryrkjum og þeim sem eru lægst launaðir á landinu.

Vigdís kennir svo samtökum verkalýðsstéttanna um það hversu naumt er skorið til þessara hópa. Reyndar er skoðun hennar og svör full af hroka og skeytingarleysi.

Best lýst með mynd sem fylgir blogginu.

Í stuttu máli telur Vigdís að meiri kostnaður hljótist af vinnu og svo leikskólaplássi. Sem sagt, öryrkjar eiga ekki rétt á leikskólaplássi.

Vigdís tekur ekki með í reikninginn að lyfjakostnaður er oftast talsverður hjá öryrkjum og þá kostar sitt að ferðast milli staða.

Það velur það enginn að geta ekki unnið.

Það kostar heilmikið.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni