Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.

Kosningabaráttan hafin

Kosningabaráttan hafin

Líklegast verður ekki kosið fyrr en í haust nema fleiri upplýsingar úr Panamaskjölunum bendi á fleiri ráðherra.

Ákvörðunin er söguleg. Einu sinni áður á lýðveldistímanum hefur samstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks setið skemur en fjögur ár. Það var 1956 en þá var megn óánægja í Framsóknarflokknum vegna efnahagsmála. Þórarinn Þórarinsson ritstjóri Tímans skrifar:

"Eins og kunnugt er, var það flokksþing Framsóknarmanna, er tók þá ákvörðun, að stjórnarsamstarfið skyldi rofið. Þingflokkur Framsóknarflokksins hefur hins vegar talið rétt, að sú ályktun flokksþingsins kæmi ekki til framkvæmda fyrr en búið var að tryggja framgang laga um atvinnuleysistryggingarnar, en núverandi stjórn lofaði því við lausn verkfallsins í fyrra, að slík löggjöfskyldi sett á þessu þingi."

Aðstæður nú eru hins vegar aðrar. Nú hrökklast ríkisstjórn frá vegna spillingar.

En kosningabaráttan er hafin þó ekki verði kosið fyrr en í haust. Allir bjuggust við að þingið 2016-2017 yrði kosningaþing. Svo verður ekki en núverandi þing breytist hins vegar í kosningaþing.

Það er því með öllu óljóst hvaða mál verða afgreidd á þessu þingi þar sem pólitískur ágreiningur er um.

Stjórnarskrárbreytingar því ekki á dagskrá eina ferðina enn.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni