Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.

Könnun MMR: Hvað gera félagshyggjuflokkarnir?

Könnun MMR: Hvað gera félagshyggjuflokkarnir?

-

MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina á tímabilinu 27. janúar til 1. febrúar 2016. Samkvæmt könnuninni þá mælist fylgi Pírata nú 35,6% sem er minnkun um 2,2 prósentustig frá síðustu könnun (sem lauk þann 20. janúar síðastliðinn). Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna mælist nú 33,3% og þokast heldur upp á við frá síðustu könnun. Breytingar á fylgi flokka voru í öllum tilfellum innan vikmarka frá síðustu könnun.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 21,1% borið saman við 19,5% í síðustu könnun (20. janúar) og 20,6% í könnuninni þar áður (18. desember). Fylgi Framsóknarflokksins mældist 12,2% borið saman við 10% í síðustu könnun og 11,5% í könnuninni þar áður. Fylgi Vinstri-grænna mældist nú 11% borið saman við 12,5% í síðustu könnun og 11,4% þar áður. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 9,4% borið saman við 10,4% í síðustu könnun og 12,9% þar áður. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist 4,4% nú sem er hið sama og í síðustu könnun en 5,3% þar áður. Fylgi annarra flokka mældist um og undir 1%.- (heimasíða MMR).-

Hér er í raun engin breyting eins og staðan hefur verið s.l. 10 mánuði. Ef þetta gengur eftir í kosningum gætu Píratar myndað tveggja flokka stjórn með Sjálfstæðisflokknum eða þriggja flokka stjórn með Samfylkingu og Vinstri grænum.
Verður að teljast líklegra að fyrst verði reynd tveggja flokka stjórn Pírata og Sjálfstæðisflokksins. Þó gæti krafa Pírata um kosningar eftir tvö ár um stjórnarskrárbreytingar standa í sjálfstæðismönnum.

Eina útspil félagshyggjuflokkana (xS og xV) er hreinlega að sameinast a.m.k. í kosningabandalag miðað við núverandi kosningalög, og bjóða Pírötum upp í dans.

Ef þetta ætti að ganga eftir þyrftu félagshyggjuflokkarnir að gera eftirfarandi:

  • Skipa samstarfsnefnd sem kæmi með tillögur um samvinnu/sameiningu
  • Halda landsfundi og áður, fundi um land allt
  • Gera áætlanir um málefni og áherslur fyrir árslok 2016.

Þetta mun ekki leysa forystuvanda Samfylkingar, flokkurinn yrði að fresta lausn á þeim vanda þar til ljóst yrði að samstarf við Vg væri á borðinu.

Tíminn er naumur og ljóst að ef engin hreyfing verður á þessu fyrir þinglok eru flokkarnir brunnir inni á tíma.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni