Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.

Klúður, klúður klúður

Klúður, klúður klúður

Viðurkenni að fyrirsögnin er í sterkara lagi. En hvað á maður að segja?  Í fyrsta lagi erum við að klúðra eitt stykki forsetakosningum. Líkt og gerðist í kjöri til Stjórnlagaþings varð framboðið tuttugu fallt. Líklegast mun sama gerast í forsetakosningunum. Ég þori að fullyrða að þeir sem sömdu ákvæðið um forsetakosningar sáu það ekki fyrir að 20 manns gæfu kost á sér í embættið. Eftirfarandi fann ég um meðmælendur: 

Lögin kveða meðal annars á um að forsetaefni þurfi að skila inn meðmælum frá minnst fimmtán hundruð manns úr öllum landsfjórðungum. Engin breyting hefur orðið í þeim efnum frá forsetakosningunum árið 1952. Þá voru Íslendingar rúmlega 146 þúsund talsins, en eru yfir helmingi fleiri í dag - eða um 329 þúsund. 

Einmitt! Ekki breyst í 64 ár!  Djöfuls klúður. En enginn ber ábyrgð á þessu þó lög um forsetakosningar var síðast breytt 2004. 

Smátt og smátt berast upplýsingar hverjir hafa verið kappkosta að borga EKKI af þeim aflandseignum sem "löglega" er skotið undan.

Á þessari stundu berst klúðrið inn í Samfylkinguna sem átti ekki efni á slíku fylgislega:

" Í viðtali við Kjarnann fyrr í dag um félag Vilhjálms [Þorsteinssonar] í Lúxemborg sagði Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, að það væri ekki samrýmanlegt að vinn trúnaðarstörf fyrir Samfylkinguna og eiga félag í skattaskjóli. „Það er ósamrýmanlegt trúnaðarstörfum Samfylkingarinnar að vera með eign í skattaskjóli. "

Gott og vel gjaldkerinn mun því rjúka. Samt klúður.

Ofan á þessari klúðursköku er svo ábætir. Miðað við stöðuna á alþingi (enn með litlum staf) þá bætir ekki í skák að tillagan um þingrof verður auka eldhúsdagur sem þjappar stjórnarliðum saman. Klúður. 

Það verður því enginn tími til að ræða um þunnildin. Hér á ég við þá undanrenna sem kom undan Pálsnefndinni um stjórnarskrárbreytingar. Klúður.

Hvað þá að í sjónfæri sé alvöru breytingar á stjórnarskrá. Klúður.

Klúður, klúður, klúður........

 

 

 

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni