Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.

Jón Gnarr í startholunum?

Jón Gnarr í startholunum?

Menn lesa það út úr eggjahljóðum frá Jóni Gnarr að hann horfi til Bessastaða. 

Ég er ekki alveg viss svona sólarhring fyrir tilkynningu sem hann hyggst gefa út um ætlan sína.

Forsetaframboð er allt önnur deild en verndaður vinnustaður við Tjörnina. 

Sú stemmning sem skapaðist kringum Besta flokkinn og Jón Gnarr er farin framhjá. 

Ekki verður séð hvert Jón mun sækja fylgi sitt og ekki öruggt að það sé í hendi. Líklegast betra að skoða hverjir myndu EKKI styðja hann.

En nú eru þessar vangaveltur komnar í mikinn EF-stíl.

Fari hann fram er nægur tími til að skoða bakland hans.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni