Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.

Jöfnun atkvæðisréttar eru mannréttindi

Jöfnun atkvæðisréttar eru mannréttindi

Björgvin G. Sigurðsson varaþingmaður og fyrrverandi ráðherra heldur nánast einn uppi gömlu réttindamáli jafnaðarmanna. Hann leggur fram á alþingi frumvörp um jöfnun atkvæðisréttar sé þess kostur.

Jöfnun atkvæðisréttar eru nefnilega mannréttindi.

En málið er gamalt og margir þröskuldar á leiðinni:

Yfirlit yfir frumvörp um landið eitt kjördæmi -

1927 Héðinn Valdims. Jafn kosningarréttur, Ekki útr.-landið eitt kjördæmi, þing ein málstofa, birting milliríkjasamn.
o.fl.

1932 Jón Baldvinsson , Jón Þorláksson, Pétur Magnússon
Jafnvægi , rýmkun atkvæðisréttar atkvæða. Ekki útrætt.

1933 Jón Baldvinsson Landið eitt kjördæmi afnám deildarskiptingar
Alþingis, rýmkun atkvæðisréttar o.fl. Ekki útrætt.

(Heimild: Ágrip af sögu stjórnarskrá. Gunnar Helgi Kristinsson. 2005.)

Það má því segja að Alþýðuflokkurinn hafi nánast einn haldið þessu réttindamáli á lofti, stundum með stuðningi sjálfstæðismanna. Stóri þröskuldurinn var Framsóknarflokkurinn.

Hvernig er í dag atkvæðum skipt eftir kjördæmum? Skoðum dæmi:

A10 Þorsteinn Sæmundsson (B)    7307,7            
A11 Katrín Júlíusdóttir (S)    5201,5            
A12 Birgitta Jónsdóttir (Þ)    2527,7            
A13 Elín Hirst (D)    9142,7        

atkv/þingsæti    
    111626,8/13    /    8586,68    


Þingmenn kjörnir í Norðvesturkjördæmi í alþingiskosningum 27. apríl 2013            
            
    Atkvæðatala, sbr. 2. mgr. 110. gr.        
A1  Gunnar Bragi Sveinsson (B)        6078        
A2  Einar K. Guðfinnsson (D)        4186,5        
A3  Ásmundur Einar Daðason (B)        5314,6        
A4  Haraldur Benediktsson (D)        3203,3        
A5  Guðbjartur Hannesson (S)        2109        
A6  Elsa Lára Arnardóttir (B)        4581        
A7  Jóhanna María Sigmundsdóttir (B)    3821,4        
A8  Lilja Rafney Magnúsdóttir (V)    1460        

atkv/þingsæti
    30753,8    /    3844,225
            
            
            
Hlutfall atkvæðamagns     3,63        
Atkvæðamismunur m. leiðrétt.      2,23      (Heimild Hagstofa Íslands)

Ef einungis er horft til atkvæðismagns á þingmann er munurinn 3,63. Með innbyggðri leiðréttingu er munurinn 2.23.

Tveir Gíslar og fjórðungur að auki þarf til að jafna Gunnar Braga Sveinsson.

Finnst mönnum þetta hægt?

Þetta er ekki einu sinni á borði núverandi stjórnarskrárnefndar.

 

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni