Þessi færsla er meira en 8 ára gömul.

Hverfakjördæmi - í átt að íbúalýðræði?

Hverfakjördæmi - í átt að íbúalýðræði?

Halldór Halldórsson hefur sett fram hugmyndir um hverfakjördæmi í Reykjavík. Ekki hefur hann útfært þetta nánar en ætla má að sama hugsun byggi á baki og einmenningskjördæmi byggir á.

Að mínu mati er hér farið í þveröfuga átt.

Miklu frekar ætti að efla íbúalýðræði með beinum kosningum um málefni svæðis og hverfis. Sú hugmynd hefur jafnvel verið útfærð þannig að íbúar hverfis ákveði forgangsröðun framkvæmda og hafi til þess fjármagn úr fjárhagsáætlun borgar/bæjar.

Það verður því fróðlegt að sjá viðbrögð þeirra sem aðhyllast frekar beinu lýðræði, þ.e. Píratar og Styrmir Gunnarsson.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni