Hvað gerist klukkan 18 á sunnudag?

Smátt og smátt er að renna upp ljós fyrir almenningi. Í landinu búa tvær þjóðir með mismunandi lífsstíl og gæði. Þeir sem búa í efra laginu, lúxuslaginu geta hreinlega ekki skilið lífskjör og brauðbaráttu almennings.
Þessi skipting þjóðar hefur farið hljótt líkt og vera bleika fílsins í stofunni. Enginn sér hann eða talar um hann, allir vita samt að hann er þarna.
Líklegast fáum við að skoða þjóðskrá efra lagsins á sunnudag. Fáum sannreynt að hinn og þessi sem á allt og fer í trissuferðir er á listanum.
Listafólkið mun koma fram og sannfæra alla um sakleysi sitt. Þetta er allt einn allsherjar misskilningur og mannorðsþjófnaður.
En ef ég hef rétt fyrir mér mun þá þjóðin pústa og svo verður aftur logn?
Eða verður jarðskjálfti.. . ...nú eða bylting?
Athugasemdir