Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.

Hrægammurinn Simmi

Hrægammurinn Simmi

Einu sinni í landinu Langíburtistan var stjórnmálamaður sem kom fram og vildi taka á efnahag lands síns. Erlendir fjárfestar vildu mergsjúga þá hagsæld sem þó voru enn í þjóðarbúinu. Stjórnmálamaðurinn hugumstóri, köllum hann Simma, vildi berja á þessum fjárfestum sem höfðu búið sér til haug sem kallaðist aflandskrónur. Simmi vildi sækja að þessum fjárfestum, sem hann kallaði hrægamma. Helst með haglabyssu og kylfu. 

Kjósendur sögðu húrra! Og Simmi var kosinn til þess að stjórna. Simma þótti voða vænt um krónu landsins og vildi ekki sjá neina breytingu á gjaldmiðlinum. Til þess að verja krónuna vildi hann afnema verðtryggingu sem væri einfalt mál.

Nú leið og beið og lítið gerðist í efnahag Langíburtistan. Fólk stritaði fyrir rýrnandi krónu og misskipting óx.

Fólk vildi fá að vita hvenær góðærið hans Simma kæmi líkt og Snati í kvæðinu um kökuna og jólin.

Þá kom svoldið skrítið fyrir. Í ljós kom að Simmi var ekki Simmi, heldur hrægammur í Aflandslandi.

Eftir stendur hnípin þjóð.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni