Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.

Hreyfanlegur viðbúnaður

Hreyfanlegur viðbúnaður

Samstarfssamningur Íslands og Bandaríkjanna um öryggismál sem undirritaður var við brottför hersins 2006 er ekki flókinn.

Í varnarsamningnum segir meðal annars:
"Ísland og Bandaríkin hafa átt samráð um varnaráætlun fyrir Ísland sem Bandaríkin hafa samið. Ísland samþykkir áætlunina sem gerir ráð fyrir því að varnir Íslands séu tryggðar með öflugum og hreyfanlegum viðbúnaði og liðsafla og að hún sé studd bandarískum hernaðarmætti eftir því sem þörf krefur."
"Banaríkin og Ísland hafa gert ráðstafanir til að tryggja hröð og skilvirk samskipti milli stjórnvalda á hættutímum, þar á meðal við hernaðaryfirvöld eftir því sem þörf er á."

Þarna kom inn nýtt öryggishugtak, -hreyfanlegur viðbúnaður-.

Endurkoma bandaríska hersins nú hefur að mínu mati annan tilgang en skyndileg umhyggja fyrir íslensku öryggi. Hér er einu peði í stórveldaskákinni ýtt fram til að auka viðsjár og spennu. Spennu sem á upphaf við Krímskaga. 

Noam Chomsky sá ágæti stjórnmálafræðingur minni okkur á að Gorbachev opnaði við fall Berlínarmúrsins að sameinað Þýskaland yrði í NATO. Í staðinn myndi NATO ekki færa sig þumlung til austurs. Clinton forseti rauf þetta munnlega samkomulag með útvíkkun NATO til Póllands. Til samanburðar þá tóku Bandaríkjamenn austurhluta Kúbu hernámi fyrir 110 árum. Þeir höfnuði nýjum valdhöfum á Kúbu 1959 að afsala sér landinu.

Kom í hugann þegar talsmaður NATO í fréttunum var Pólskur hershöfðingi.

Er það alveg sjálfsagt að opna dyrar fyrir leigjandanum? Hvernig fór þetta í samnefndri sögu Svövu Jakobsdóttur?

Eigum við ekki aðeins að melta þetta?

 

 

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni