Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.

Guðmundur stígur í hægri fótinn i

Guðmundur stígur í hægri fótinn i

Vafalaust hefur farið hrollur um Guðmund "Bjarta" Steingrímsson þegar fylgi flokks hans fellur í bjórfylgi í könnunum.

Engum nema honum sjálfum hefur dottir í hug að sameina BF og SF. En nú vill Guðmundur renna atkvæðafæri sínu á ný mið sem Píratar sigla á. Athyglisvert er að í viðtali talar formaður BF um gott samstarf við Sjálfstæðisflokkinn, og á þar við samstarf í Kópavogi og Hafnarfirði. Mér segja heimamenn í þessum sveitarfélögum að lítið veri menn varir við Bjarta framtíð. Sjálfstæðismenn hafa vart fyrir því að láta BF vita af breytingum. 

Einnig er Guðmundur að vísa í föðurarfinn þar sem farsælt helmingaskipt stjórn landsins var meginstef síðustu stjórnmálaaldar.

Bakgrunnur í merki Bjartar framtíðar er fjólublár. 

Hann hefur blánað.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni