Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.

Grein Svans Kristjánssonar um prófkjör

Grein Svans Kristjánssonar um prófkjör

Í dag fjalla ég um merkilega grein Svans Kristjánssonar, prófessors, sem birtist í TMM 2014, um prófkjör. Aðallega fjallar hann um baráttu manna innan Samfylkingarinnar í prófkjörum. Gefum Svani orðið:

-Í bókinni Ár drekans eru magnaðar lýsingar á prófkjörum Samfylkingarinnar haustið 2012. Ekki bara í Reykjavík þar sem haldið var sameiginlegt prófkjör Samfylkingarinnar fyrir bæði Reykjavíkurkjördæmin heldur einnig í Suðvestur kjördæmi, Kraganum.[...]

Harkan í prófkjörinu í Reykjavík er gífurleg og sjálfur segist Össur aldrei hafa fundið jafn mikla heift í þeim sjö prófkjörum sem hann hafi tekið þátt í. (bls. 333).[...]
Frá sjónarmiði Össurar er hörð barátta nauðsynleg. Hann á einfaldlega í átökum við harðvítuga andstæðinga lýðræðis innan Samfylkingarinnar sem vilja opnu prófkjörin feig.-

-0-

Þetta er rifjað upp vegna þess að Samfylkingin stendur frammi fyrir nokkrum verkefnum:

Í fyrsta lagi þarf flokkurinn að kjósa sér formann sem þokkanleg sátt verður um.

Í öðru lagi þarf flokkurinn, á sama tíma, að móta sér stefnu og ákveða baráttumál í næstu kosningum.

Í þriðja lagi þarf flokkurinn að velja á framboðslista um land allt, þar á meðal í Reykjavík og Kraganum.

Það er ekki einboðið að sáttartónninn sé meiri og samhljóma í þetta sinn.

Svanur hefur skoðun á prófkjörum:

-Svo skrifað sé af hreinskilni: Að mínu mati hafa prófkjörin að mestu rústað íslenskum stjórnmálaflokkum sem samfélögum fólks um sameiginlegar hugsjónir. Prófkjörin hafa einnig stuðlað að vanþróun lýðræðis í landinu með margvíslegum hætti. Og síðast en ekki síst: Prófkjörin næra verri hliðarnar í okkur öllum, sérgæskuna, valdagræðgina og framapotið.-

-0-

Þetta verður ekki skýrara sagt.

Enn fremur segir Svanur að lokum:

-Leikreglur í stjórnmálum skipta nefnilega máli: Við eiga ekki að hafa leikreglur í stjórnmálum sem að breyta prestssyni  - eins og Árni Páll Árnason er - í „villidýr“ eða umturna doktor í lífeðlisfræði yfir í yfirherforingja í baráttusveit gegn ímynduðum lærisveinum Lenins - sem reyndar eru í sama stjórnmálaflokki og hann sjálfur!-

-0-

Að hluta til koma inn á sviðið nýir leikendur og nýir hættir.

Það er því fróðlegt að fylgjast með atburðum næstu missera og hvort Svanur Kristjánsson sé sannspár.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni