Gallup: Kunnuglegar fylgistölur

Það er kannski ofsagt hjá Jóhönnu Vigdísi að fylgi Sjálfstæðisflokksins "rjúki upp", en flokkurinn að að nálgast náttúrufylgi sitt. Náttúrufylgi má skilgreina þannig að ákveðinn hluti kjósenda vilja samsama sig Sjálfstæðisflokknum jafnvel þó kjósandinn komi úr stétt lægst launaðara. Kosningarannsóknir sýna m.a. að hluti kjósenda vill fylgja þeim sem líklegast fái mesta fylgi. (Campell og fl. 1960).
Skoðum stöðuna:
Nær 27 prósent segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn í alþingiskosningum samkvæmt nýrri Gallup-könnun. Það er aukning um fimm prósentustig frá síðustu viku. Framsókn fengi tæp sjö prósent sem er minnsta fylgi sem flokkurinn hefur mælst með síðan í febrúar 2008.(RÚV)
Niðurstöður þessarar könnunar eru úr netkönnun Gallups sem gerð var 7. til 12. apríl. Heildarúrtak var 1.434 og var þátttökuhlutfall 56,1 prósent og af þeim nefndu 82,9 prósent flokk. Spurt var: Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?
Píratar gefa eftir en flugeldur vikunnar er Vinstri græn. Samfylkingin nær ekki tveggja stafa fylgi. Á síðustu öld var þetta kunnugleg staða. Hinir svokölluðu A-flokkar (Alþýðubandalag og Alþýðuflokkur) voru í svipaðri stöðu þar sem sósíalistarnir voru frá 1940 yfirleitt stærri flokkurinn.
Ef þetta er tilhneigingin þá gæti haustkosningar skila svona úrslitum gróflega:
Framsóknarflokkur 10%
Sjálfstæðisflokkur 29%
Píratar 20%
Samfylkingin 15%
Vinstri græn 19%
Björt framtíð 5%
Aðrir 2%
Hér eru óvissuþættir. Svarhlutfall nær ekki 60%. Þá gæti það skipt máli hver yrði formaður Samfylkingarinnar og hversu Björt er framtíðin.
Athugasemdir