Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.

Frestaði forsetinn fundum alþingis?

Frestaði forsetinn fundum alþingis?

Boðun Einars K. Guðfinnssonar, forseta alþingis til Bessastaða er einstakur atburður. Ekki er vitað hvaða erindi forseti lýðveldisins átti við forseta alþingis en þetta gæti verið ástæðan:

23. gr. Forseti lýðveldisins getur frestað fundum Alþingis tiltekinn tíma, þó ekki lengur en tvær vikur og ekki nema einu sinni á ári. Alþingi getur þó veitt forseta samþykki til afbrigða frá þessum ákvæðum.

 [Hafi Alþingi verið frestað getur forseti lýðveldisins eigi að síður kvatt Alþingi saman til funda ef nauðsyn ber til. Forseta er það og skylt ef ósk berst um það frá meiri hluta alþingismanna. (Stjórnarskrá Íslands).

Gæti verið að Ólafur Ragnar hafi metið stöðuna svo að landið væri stjórnlaust?

Nú þarf stjórnarandstaðan að bretta upp ermar og krefjast umræðna um vantraust á ríkisstjórnina.

Núna!

 

 

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni