FORSETINN ÁKVEÐUR!

Kennarinn minn Svanur Kristjánsson hafði rétt fyrir sér. Óskýrleiki stjórnarskrárinnar og ófyrirséður forseti er römm blanda. Það eina sem Svanur gerði, líkt og jarð- eða veðurfræðingur er að beita vísindunum. Því miður hafa heyrst hæðnishlátur úr Lögbergi. Slíkur hlátur hljóðnaði 2004 við beitingu 26.greinarinnar.
Og aftur hljóðnaði í dag.
Viðbrögð forsetans um að hafna forsætisráðherra er dæmafá en ekki einsdæmi. Árin 1931 og 1974 eru efnd í mínu námi.
Sem Svanur benti á, aftur og aftur, er að hér ríki forsetaþingræði.
Björg Thorarensen prófessor í lögum sagði réttilega að með þessu stígi forsetinn inn í hring stjórnmálanna.
Mikið rétt! Þannig virkar forseta stjórnskipan Íslands miðað við núverandi stjórnarskrá sem stjórnmálastéttin móast við að breyta.
Ég vil þakka Ólafi Ragnari Grímssyni forseta Íslands að taka forsætisráðherra í kennslustund í stjórnskipan.
Í lokin svo þakkir til Svans Kristjánssonar fyrir afburða fræðimennsku.
Athugasemdir