Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.

Forseti fæst við skugga

Forseti fæst við skugga

Klerkur einn í þjóðsögum okkar þótti orðstór og sérlega við ójafnaðarmenn. Slíkir ójafnaðarmenn sem kunnu lengra en nef sitt sendu kleki óværu eða uppvakning til að hrella hann eða drepa. En klerkur kunni líka sitthvað í kukli og beindi sendingum í skugga sinn. Það gerði það að verkum að klerkur varð skuggalaus.

Likt gerði Sæmundur fróði við skólalok í Svartaskóla:

Þegar nú kölski ætlaði að taka Sæmund þá sagði hann: „Ég er ekki seinastur. Sérðu ekki þann sem á eftir mér er?“ Kölski þreif þá til skuggans sem hann hélt mann vera en Sæmundur slapp út og skall hurðin á hæla honum. En upp frá þeirri stundu var Sæmundur jafnan skuggalaus því kölski sleppti aldrei skugga hans aftur.

Forseti vor fæst við skugga. Skugginn er skuggi sagnfræðingsins Guðna Thorlacius Jóhannessonar. 

Guðni er sem sagt ekki enn formlega kominn í framboð en jafnhattar forsetann i fylgi.

Líklegast á forsetinn eitthvað upp í erminni í þessari rimmu.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni