Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.
Forsetakosningar: Hvernig barátta?

Fyrirferðamikill fyrrverandi stjórnmálamaður er kominn inn á hlaupabrautina til Bessastaða. Fyrir voru á brautinni prúðbúnir hlauparar sem stilltu sér hógværlega á marklínuna og biðu eftir ræsingu.
Sá fyrirferðamikli ruddist inn í miðjan hópinn og valdi sér bestu hlaupabrautina og ýtti frekar við þeim sem honum fannst vera að flækjast fyrir sér.
Hreytti ónotum í hina og kvartaði fyrirfram yfir dómgæslunni.
Sá sem þótti einna sigursælastur gekk að dólgnum og bað hann vinsamlegast að róa sig.
„Afi þinn er rugludallur" urraði dólgurinn og hljóp af stað án þess að athuga hvort búið væri að ræsa.
Er nokkuð annað að gera en hlaupa dólginn upp og olboga hann út af hlaupabrautinni?
Ég held það.
Athugasemdir