Forsetakosningar: Framboð gætu orðið á annan tug

Í þessum lygnsæla marsmánuði berast tilkynningar um framboð til forseta nær daglega. Ég held að yfirlýst framboð séu að nálgast tuginn. Þá eru all margir undir forsetafeldi, veit um amk. um þrjá sem allir eiga góða möguleika.
Tölfræðilega gæti forseti verið kosinn með 11% atkvæða. Að mínu mati er það vond staða fyrir embætti forseta. Það traust sem embættið þarf að standa á mun veikjast. Svo mikið að menn munu íhuga annað hvort að leggja embættið niður eða draga úr raunverulegum völdum þess. Slíkt kom upp í Finnlandi og sátt varð um nýskipan embættisins þar.
Þegar leitað var eftir frambjóðendum til stjórnlagaþings óraði engum fyrir þeim áhuga sem skapaðist. Framboðin urðu rúm 500.
Fyrr en síðar munu menn sjá og skilja að endurskoða þarf og skilgreina embætti forseta og þær kosningareglur sem þar gilda.
Athugasemdir