Forsetaefnum fækkar, slagurinn harðnar

Rétt í þessu dró enn einn forsetaframbjóðandi framboð sitt til baka. Allir þeir sem hætta við framboð gefa sömu skýringu, óvænt framboð núverandi forseta.
Þó ekkert hindri núverandi forseta að taka slaginn má einnig segja að forsetinn hindri eðlilega endurnýjun á Bessastöðum. Sjálfur hefur hann margoft sagt að "eðlilegur tími í forsetastól" sé tólf ár.
Eins og staðan er nú þá hefur núverandi forseti mesta forskotið. Of snemmt er að segja til um hvort hann haldi því eða aðrir frambjóðendur sæki að honum. Sá sem hugsanlega gæti ógnað forskoti forsetans er enn undir feldi, enda liggur ekkert á.
Sjálfur fór forsetinn ekki fram 2012 fyrr en á mæðradaginn það ár og helsti keppinauturinn lagstur á sæng.
Líkt og þá þá varð harðnaði slagurinn og í miðju svaðinu var forsetinn:
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, veittist harkalega að fréttastofu Ríkisútvarpsins og mótframbjóðanda sínum, Þóru Arnórsdóttur. í einkaviðtali í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Sagði Ólafur Ragnar í drottningarviðtalinu að Svavar Halldórsson, eiginmaður Þóru, hefði verið falið sem fréttamanni að vinna frétt um skoðanakönnun þar sem hann Þóra kom út sterkari en forsetinn. Átaldi forsetinn fréttastofuna fyrir þessi vinnubrögð. Sagði hann að þótt Þóra hefði á þeim tíma ekki verið búin að gefa upp framboð sitt hefði það verið í fullum undirbúningi.
„Skýrasta dæmið er auðvitað á sama tíma og samtökin um betri kost á Bessastöðum voru með skoðanakönnun til að mæla Þóru og mig aðra, þá kom 20. mars eiginmaður Þóru, Svavar Halldórsson með langa frétt í RÚV sama dag og verið var að taka þessa könnun, þar sem upptaktur fréttarinnar var það að nú væri búið að ákveða hvenær kjördagur yrði, hann var nú ákveðinn fyrir mörgum áratugum þannig það var ekki frétt, en síðan var öll fréttin svona sérhönnuð og klippt frétt til að sá efasemdum í minn garð, skapa tortryggni út í mitt framboð," sagði Ólafur Ragnar á Bylgjunni í morgun.
Forsetinn segir að Þóra og Svavar hafi verið með í ráðum varðandi könnunina sem geri þetta enn alvarlegra.
„Þetta fékk hann að gera á sama tíma og hann og hún höfðu samþykkt að taka þátt í því að mæla fylgi hennar á móti mér,“ sagði Ólafur.
Var að heyra á forsetanum að nokkur hætta gæti steðjað að forsetanum ef hann yrði ekki endurkjörinn. Sagði hann að kosningarnar væru orðnar einskonar bíó.
„Þetta finnst mér endurspegla ákveðna blindu í fjölmiðlum, að kannski sé þetta bara allt saman orðið svona eitt allsherjar bíó, forsetakosningarnar og umræðan í þjóðfélaginu og ákvarðarnirnar. Eins og við sjáum á því að sá sem stjórnar kosningabáráttunni hjá henni er kvikmyndaleikstjóri sem gerði bíómynd um borgarstjórakosningarnar, sem vinnur nú að þvúi að búa til bíó um forsetakosningarnar,“ segir Ólafur Ragnar og vísar til leikstjórans Gauks Úlfarssonar.
Ólafur Ragnar taldi að fjölmiðlar, margir hverjir, ætluðu sér að fylkja sér að baki Þóru og koma henni á Bessastaði. Nefndi hann þar sérstaklega DV sem ásamt Ríkisútvarpinu hefði ýmigust á sér en aðdáun á Þóru sem hefði verið upphafin. Taldi hann að margir vildu koma á sig höggi fyrir að hafa staðið gegn lögunum um Icesave.(dv.is)
Nú hefur forsetinn vart Icesave enn til brúks í hnútukasti en hann er sjálfur í varnarstöðu vegna viðtals á CNN.
Mig undrar reyndar hvers vegna maður á áttræðisaldri skuli nenna að taka enn einu sinni þátt í slag sem gæti ratað út í svaðið.
Kann hann við sig þar?
Athugasemdir