Þessi færsla er meira en 9 ára gömul.

Flokksstofnun: Íslenskir jafnaðarmenn

Flokksstofnun: Íslenskir jafnaðarmenn

Þessa dagana er mikil tilvistarkreppa í þeim flokki sem varðveitir formlega jafnaðarstefnuna og sinnir samskiptum við erlenda sósíaldemókratíska flokka. Að vísu ekki með rós í barmi og krepptan hnefa. Í því felst líklega hluti vandans. Árni Gunnarsson, eðalkrati, stakk uppá því á fundi að Samfylkingin tæki upp alþjóðamerki krata, rósina. Hann fékk miklar skammir og honum bent á að þessi flokkur væri ekki Alþýðuflokkurinn gamli. 

Er þetta rót vandans?

Það spretta upp tillögur allt frá því að leggja Samfylkinguna niður til þess að breyta um nafn og kennitölu.

"Nýr jakki, sama röddin". 

Hér er enn ein hugmynd.

Stofnuð verði hreyfing jafnaðarmanna, Íslenskir jafnaðarmenn, þar sem flokkskerfið verði með svipuðu sniði og Píratar styðjast við. Þó verði ákvörðunartökur um stefnuna og baráttumál teknar af fleirum en Píratar gera ráð fyrir.

Um daginn sá ég t.d. að mikilvæg ákvörðun í stjórnarskrármálinu var felld eða samþykkt 70 atkvæði með, 40 á móti. Í kjölfarið hófust deilur um ákvörðunina.

Vissulega yrði byggt á grunnstefi jafnaðarstefnunnar en þess gætt að ákvörðunarferlið væri gegnsætt og augljóst.

Ég nefni þetta vegna þess að ég sá að hljóðlega var breytt kosningareglum í formannskjöri Samfylkingarinnar í átt að meira flækjustigi. Þeir sem áhuga hafa á því kerfi geta fundið það undir heitinu single transferable vote, STV. Einnig notað við kjör til Stjórnlagaþings.

Sem sagt stofnun hreyfingar en ekki flokks. Stjórnmálaflokkar hafa tilhneigingu til að breytast í kjarnræðisflokka. (Steinrenna). 

Ég geri nú ekki ráð fyrir að þessi hugmynd fái vængi, en er hún vitlausari en það sem formannsefni leggja til?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni